Duran Duran til Íslands í sumar 2. apríl 2005 00:01
Ein vinsælasta og áhrifamesta hljómsveit níunda áratugarins, Duran Duran, mun leika á tónleikum í Egilshöll 30. júní. Sveitin naut gríðarlegra vinsælda á Íslandi, sem og annars staðar, upp úr 1980 en frægðarsól hennar skein sem skærast þegar þriðja LP-plata hennar, Seven and the Ragged Tiger, kom út árið 1983 og lög af henni tröllriðu vinsældarlista Rásar 2. Það er óhætt að segja að koma þeirra Simon Le Bon, John Taylor, Andy Taylor, Nick Rhodes og Rogers Taylor sé löngu tímabær en ungir Íslendingar ólu þá von í brjósti sér að það tækist að fá kappana til að troða upp í Laugardalshöll fyrir um það bil 20 árum síðan. Sveitin hefur tekið nokkrum breytingum í gegnum árin; áherslan í tónlistarsköpun hefur þróast í ýmsar áttir og menn hafa komið og farið úr bandinu. Simon Le Bon og Nick Rhodes hafa þó verið með frá upphafi og ekki alls fyrir löngu sneru týndu Taylorarnir þrír aftur heim þannig að sú Duran Duran sem nú ferðast um heiminn og spilar er sú eina sanna og þeir sem hafa séð til þeirra á sviði á síðustu árum fullyrða að þeir hafi engu gleymt frá því að þeir skutust upp á stjörnuhimininn. Heimildir Fréttablaðsins herma að tónleikahaldarar hafi í upphafi ætlað sér að fá íslenska "eitís" sveit til að hita upp fyrir Duran Duran og hafi rennt hýru auga til Rikshaw. Sú sveit, með Richard Scobie í broddi fylkingar, átti nokkra smelli þegar "sítt að aftan" tímabilið var í algleymi og þótti stæla Duran Duran í einu og öllu. Þessi upphitunaráform urðu þó að engu þegar skilaboð komu frá Duran Duran um að þeir vildu alls ekki að fá neina "eitís" hljómsveit til að hita upp fyrir sig.
Menning Mest lesið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Fleiri fréttir Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Sjá meira