Bestu vinir Dóra slá í gegn 4. mars 2005 00:01
Á flokksþingi Framsóknar um síðustu helgi kom fram glæný og áður óþekkt hljómsveit skipuð ekki svo óþekktu fólki. "Við lékum þarna heil tvö æfð lög og vorum jafnframt neydd til þess að taka óæft aukalag," segir Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins og trommari hljómsveitarinnar. "Auk mín var hljómsveitin skipuð þeim Magnúsi Stefánssyni, Sigurði Egilssyni, Guðmundi Ragnarssyni og söngvararnir voru ekki af verri endanum heldur því Árni Magnússon félagsmálaráðherra og Sæunn Stefánsdóttir varaþingkona og aðstoðarkona heilbrigðisráðherra, sungu þetta kvöld. Við spiluðum þarna lögin Mustang Sally og Proud Mary og aukalagið Traustur vinur fyrir um fimmhundruð manns og höfðum afskaplega gaman af og síðan hef ég verið hamingjusamur maður," segir hann og hlær. Að sögn Hjálmars er sveitin ónefnd ennþá en margar hugmyndir hafa komið upp, þar á meðal "Bestu vinir Dóra", og útilokar hann ekki að hljómsveitin gefi jafnvel út eitthvert efni. Aðspurður hvernig þetta mikla hljómsveitarævintýri hafi komið til segir hann að allt hafi byrjað með kaupum hans á trommusetti fyrir nokkrum árum. "Ég hef átt þennan draum síðan ég var lítill strákur og ákvað að láta hann rætast. Ég byrjaði að æfa mig úti í bílskúr og gekk nú mjög illa svo lítið sé sagt. Eftir flokksþingið hef ég þó öðlast meira sjálfstraust í þessu áhugamáli mínu og finnst fátt betra en að koma heim að loknu argaþrasi á þinginu og ganga út í bílskúr þar sem ég á unaðslegar stundir með þeim Charlie Watts, B.B. King og John Lee Hooker og fer vel á með okkur félögunum. Svo kem ég klukkutíma seinna aftur inn endurnærður og glaður."
Menning Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira