Forsala á Maiden í mars 21. febrúar 2005 00:01
Forsala miða á tónleika rokksveitarinnar Iron Maiden í Egilshöll hefst sunnudaginn 6. mars. Iron Maiden kemur með gífurlega mikið af sviðsbúnaði fyrir tónleikana og má því búast við miklu sjónarspili. Söngvarinn Bruce Dickinson kemur einnig með 200 aðdáendur frá Bretlandi í einkaflugvél sem hann flýgur sjálfur til og frá landinu. Miðar á tónleika Maiden seldust upp á mettíma á Norðurlöndunum fyrir skömmu og því er vitað að töluvert verði af aðdáendum sem koma þaðan til að sjá sveitina í Egilshöll. Iron Maiden er fyrir löngu orðin sígild hljómsveit og í skoðannakönnun rokktímaritsins Kerrang! eru tvær plötur sveitarinnar á topp 10. Number of the Beast er í öðru sæti og Iron Maiden í því níunda. Þar sem þessi tónleikaferð byggist mikið á þeirra eldri og þekktari lögum má búast við að sveitin muni spila mörg lög af þessum tveimur plötum. Forsalan á tónleikana, sem verða þann 7. júní, fer fram í Íslandsbanka í Kringlunni og Smáralind og á www.farfuglinn.is. Einnig verður miðasala í Pennanum á Akranesi, Vestmannaeyjum, Dagsljósi á Akureyri og Hljóðhúsinu á Selfossi. Verða einungis seldir A-miðar þann daginn á öllum útsölustöðum. Mánudaginn 7. mars verður svo hægt að nálgast bæði A- og B-miða á ofangreindum stöðum. Verð á A-miðum er 7.500 krónur og B-miðum 6.500.
Menning Mest lesið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Sjá meira