Óttar Proppé með nýja hljómsveit 18. febrúar 2005 00:01
Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir DV í dag. Eins og venjulega er blaðið stútfullt af skemmilegu efni. Erna Þorbjörg er berrössuð út um allan bæ og tekur myndir af því, stripparar segja sína skoðun á íslenskum karlmönnum og ung pör tala um kynlíf og fleira. Svo er Óttar Proppé að byrja með nýja hljómsveit með nokkrum rokk- og pönkhundum. "Stefnan er að stinga á kýlum í samfélaginu. Kýlum sem þarf að stinga á. Það er meira en nóg af þeim og það kallar á pönkstarfssemi," segir Óttarr Proppé, söngvari hljómsveitarinnar Rass. Rass er samansett úr nokkrum vönum rokkurum og pönkurum. Gömlu Ham-ararnir Arnar Geir og S. Björn Blöndal á trommum og gítar, Guðni Finnson á bassa og Þorgeir Guðmundsson á gítar. Sveitin var iðin í haust, er búin að taka upp plötu, og ætlar að láta til sín taka á vormánuðum. "Við ætlum að standa okkur í pönkinu. Ákváðum að pönkið hefði engan stað í jólalátunum og frestuðum því að gefa út plötuna. Stefnan er að hafa hlutina eins einfalda og hægt er. Við æfum aldrei, það er stefnan." Meðal laga á plötunni eru Burt með kvótann, Kárahnjúkar, Óréttlæti og Bræður vilja vinna úti. "Þetta er uppsafnað frá síðastliðnum tveimur árum. Við ætluðum lengi að láta plötuna heita Stingur á kýlum en vorum svo ánægðir með upptökumanninn að nú mun hún kannski heita Aron. Öll lögin eru um tvær mínútur og ekkert kjaftæði." Þetta viðtal, djammkortið, myndasaga um Strákana á stöð 2 og margt fleira er að finna í Fókus sem fylgir DV í dag.
Menning Mest lesið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni Giftu sig með tólf daga fyrirvara og mættu í krabbameinsmeðferð daginn eftir Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Fleiri fréttir Giftu sig með tólf daga fyrirvara og mættu í krabbameinsmeðferð daginn eftir „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Sjá meira