Ekki alltaf nákvæmt hjá mér 15. febrúar 2005 00:01 "
Jú, það er nú dálítið sérstakt að vera hættur, ég var nefnilega búinn að vera svolítið lengi," segir Friðjón Guðmundsson, bóndi og veðurathugunarmaður til 65 ára. Hann hefur hreiðrað um sig á Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík, og unir hag sínum bærilega. "Ég hef það svona sæmilegt og finnst ágætt að vera hér. Ég þekki nú ekki marga en einhverja þó." Aðeins rúm vika er síðan Friðjón flutti frá Sandi á Hvamm svo segja má að hann sé enn að átta sig á vistaskiptunum. Viðbrigðin eru nokkur því hann fæddist á Sandi og bjó þar í 85 ár, ef undan eru skildir tveir vetur sem hann varði til búfræðináms á Hvanneyri. Tvítugur varð hann veðurathugunarmaður og tók við því starfi af Heiðreki bróður sínum. Í 65 ár las hann af mælunum þrisvar á dag og sendi upplýsingarnar á Veðurstofu Íslands sem fyrstu árin var til húsa í Landssímahúsinu við Austurvöll, þá í Sjómannaskólanum á Rauðarárholtinu og loks við Bústaðaveginn þar sem hún er nú. "Maður er orðinn svolítið fullorðinn og maður verður víst svolítið seinn í svifum þegar maður eldist," segir Friðjón en neitar því að verkið hafi verið erfitt og lýjandi undir það síðasta. Hann viðurkennir hins vegar að það séu nokkur viðbrigði að hætta. "Maður verður bara að sætta sig við það. Það er ekki annað að gera." Veðurathuganir útheimta mikla viðveru því lestur af mælum fer fram þrisvar á dag. Friðjón uppljóstrar að hann hafi ekki alltaf gætt ýtrustu nákvæmni í störfum. "Ég þurfti eiginlega að vera alltaf við en það var nú alls ekki svo. Ég var oft fjarverandi á daginn. En þá var einhver fyrir mig eða þá að ég kannski svona freistaðist til að áætla þetta eitthvað. Þetta var kannski ekki alltaf nákvæmt hjá mér." Friðjón segir veðrið í vetur og þá sérstaklega á nýársnótt með því versta sem hann man enda sannkallað óveður. "Það var aftaka stórhríð og ekkert skyggni." Árið 1939 ríkti á hinn bóginn mikil blíða. "Það ár var með þeim bestu. Þá var öndvegistíð svo að segja allt árið." Friðjón hélt fáeinar kýr að Sandi en Heiðrekur bróðir hans hafði þar kindur á sínum búskaparárum. Það var raunar hann sem fyrstur hóf veðurathuganir á Sandi árið 1932 en Friðjón tók við árið 1940. "Heiðrekur bróðir spekúleraði mikið í veðri og faðir okkar líka. Báða dreymdi fyrir veðrum en ekki mig," segir Friðjón og bætir við að veðrið á Húsavík sé ágætt þessa dagana. "Það er fínasta veður en svolítill snjór yfir. Hér er yfirleitt góð tíð."
Innlent Menning Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira