Valdís fékk Bafta-verðlaunin 13. febrúar 2005 00:01
Valdís Óskarsdóttir fékk bresku kvikmyndaverðlaunin, Bafta, sem veitt voru í gærkvöld. Verðlaunin fékk Valdís fyrir klippingu myndarinnar Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Óhætt er að segja að þetta sé ein mesta viðurkenning sem Íslendingur hefur fengið á sviði kvikmyndagerðar. Það má segja að Bafta-verðlaunin séu eins konar Óskar eða Edda Bretanna og því ljóst að þau vekja athygli víða um heim. Þetta eru hins vegar ekki fyrstu verðlaun Valdísar fyrir klippingu þessarar rómuðu kvikmyndar. Hún fékk bæði verðlaun samtak gagnrýnenda á Netinu og samtaka gagnrýnenda í San Diego. Þá hafa samtök kvikmyndaklippara í Bandaríkjunum tilnefnt hana til sinna verðlauna sem verða afhent um næstu helgi. Valdís hefur klippt kvikmyndir í á annan áratug - íslenskar, danskar, sænskar og bandarískar svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur tvisvar hlotið verðlaun Dönsku kvikmyndaakademíunnar fyrir vinnu sína við myndirnar Veislan og Síðasti söngur Mifune. Kvikmyndin The Aviator, sem fjallar um bandaríska milljarðamæringinn Howard Hughes, var valin besta kvikmyndin á Bafta-verðlaunaafhendingunni. Hún var tilnefnd til 14 verðlauna en hlaut fern. Mike Leigh fékk verðlaun sem besti leikstjóri fyrir myndina Vera Drake. Charlie Kaufman fékk verðlaun fyrir besta handrit fyrir handritið að Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Jamie Foxx var verðlaunaður fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á tónlistarmanninum Ray Charles í myndinni Ray og Imelda Staunton fékk verðlaun fyrir bestan leik leikkonu í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Veru Drake í samnefndri mynd. Sú mynd var tilnefnd til 11 verðlauna og hlaut þrenn. Fyrir bestan leik í aukahlutverkum voru Clive Owen og Cate Blanchett verðlaunuð, fyrir leik sinn í myndunum Closer og The Aviator. Valdís ÓskarsdóttirMYND/ÞÖKMYND/AP
Erlent Menning Mest lesið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Fleiri fréttir Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Sjá meira