Innlent

Vandamál vegna kynhegðunar

"Þetta er raunverulegt vandamál sem þarf að fjalla um í samfélaginu," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir. Mikil aukning hefur orðið á því að ungar stúlkur leiti sér hjálpar vegna sárinda í endaþarmi -- afleiðingu endurtekinna endaþarmsmaka. Sigurður landlæknir segir þau tilfelli sem vitað er um aðeins toppinn af ísjakanum. Breytt kynhegðun ungs fólks er orðin raunveruleiki sem taka þarf á. Fjallað er um málið í DV í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×