Innlent

Forstöðumenn ráðnir

Ráðið hefur verið í stöður þriggja verkefnisstjóra Vaxtarsamnings Eyjafjarðar og var gerður samningur við þrjár stofnanir Háskólans á Akureyri um stjórnun þeirra verkefna. Arnheiður Eyþórsdóttir er verkefnisstjóri matvælaklasa, en Matvælasetur HA hefur yfir því umsjón. Björk Sigurgeirsdóttir er verkefnisstjóri mennta- og rannsóknaklasa, en yfir því hefur Rannsóknastofnun HA yfirumsjón. Þá hefur Bjarni Jónasson verið ráðinn forstöðumaður á heilbrigðisklasa, en hann er forstöðumaður Heilbrigðisstofnunar HA. Enn á eftir að ráða í starf forstöðumanns fyrir ferðamálaklasa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×