Þorrablót Pottorma í laugunum 13. október 2005 15:31
Það var mikið um dýrðir í Laugardalslauginni í dag þar sem Pottormar héldu sitt árlega þorrablót. Fyrrverandi forsætisráðherra bauð upp á rótsterkt, kínverskt brennivín sem upphaflega hafði verið flutt inn sem hvítvín og lesið var bréf frá Monicu Lewinsky, fyrrverandi lærlingi í Hvíta húsinu. Jón í Sunnukjöri sá eins og endranær um þorramatinn og Inga Auðbjargar lék á gítar og harmoniku. Þessi félagsskapur, Pottormarnir, er hópur fólks sem hittist reglulega í laugunum. Steingrímur Hermannsson, pottormur og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að hópurinn komi í hádeginu og margir klæði sig alltaf úti. Það séu hinir hraustu eins og hann. Hópurinn hittist tvisvar til þrisvar á ári og er að sögn Steingríms frábær félagsskapur. Sumir hverjir, eins og hann, hafa verið í honum frá því að laugarnar voru opnaðar fyrir 30 árum. Alltaf er haldið upp á þorrann og alltaf kemur Steingrímur með kínverskt brennivín, sem þarf að skýra aðeins betur. Steingrímur segir að þegar hann hafi verið í opinberri heimsókn í Kína 1986 hafi Zhao Zhiang, þáverandi forsæitsráðherra Kína, fært honum í kveðjugjöf kassa með fransk-kínversku hvítvíni sem hann hafi sagt að nýverið væri byrjað að framleiða þar í landi. Svo hafi hann farið í tollin á Íslandi og sagst vera með hvítvínsgjöf en tollurinn hafi tekið vínið. Daginn eftir hefðu tollararnir hringt í hann og sagt að þetta væri undarlegasta hvítvín sem þeir hefðu séð. Þá hafi þetta reynst vera misskilningur hjá honum. Steingrímur segir starfsmenn kínverska sendiráðsins afar liðlega í að útvega þennan drykk. Þá var lesið bréf frá Monicu Lewinsky sem fræg varð fyrir samband sitt við Bill Clinton, en hún er pottormunum afar kær. Pottormar segja Framsóknarflokkinn aldrei hafa risið eins hátt og þegar Steingrímur var formaður hans. Gunnar Ingi Gunnarsson, einn pottormanna, segir að Steingrímur hafi trúað sér fyrir því á sínum tíma að hann hefði stillt af ríkisstjórnarfundi þannig að þeir pössuðu inn í heimsóknirnar í laugarnar, fyrst og fremst til þess að hann vissi hvað hann ætti að tala um á ríkisstjórnarfundum En þrátt fyrir þessa forsögu stendur ekki til að bjóða Halldóri, eftirmanni Steingríms, í félagið. Gunnar segir að pottormarnir bjóði ekki hverjum sem er. Steingrímur hafi verið þeirra maður og verði það áfram.
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira