Innlent

Hátt í 200 nýskráningar í Framsókn

Á annað hundrað manns skráðu sig í Framsóknarflokkinn í Kópavogi í dag og er búist við átakafundi hjá félagi Framsóknarmanna í bæjarfélaginu í kvöld. Það er best fyrir flokkinn að leggja niður deilur og láta komandi flokksþing einkennast af sáttum, segir aðstoðarmaður Halldórs Ágrímssonar. Ólga hefur verið í framsóknarfélögum undanfarið. Þar bítast menn um sæti á komandi flokksþingi, þinginu þar sem kosið verður í æðstu embætti flokksins. Karlar innan flokksins eru sagðir ræna kvenfélögum í valdabrölti sem miði að því að styrkja stöðu bræðranna Páls og Árna Magnússona. Átökin eru talin vísbending um það að ekki verði sjálfkjörið í æðstu embætti flokksins á flokksþinginu. Jafnvel gæti Halldór mögulega hugsað sér að víkja úr formannsstólnum fyrir Árna og einbeita sér að forsætisráðherrastólnum. Halldór er nú í fríi erlendis en Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður hans, segir Halldór ekki vera á leiðinni úr stjórnmálum. Hann sé tiltölulega nýorðinn forsætisráðherra og ekki sé annað í spilunum en hann gefi áfram kost á sér sem formaður Framsóknarflokksins. Útilokað verður að teljast að Árni fari beint gegn Halldóri og fullyrt er að hann hafi ekki í hyggju að bjóða sig fram til varaformanns gegn Guðna Ágústssyni. Ritaraembættinu gegnir nú Siv Friðleifsdóttir. Björn Ingi hvetur framsóknarmenn til að slíðra sverðin. Hann segir ýmislegt segja sér að komandi flokksþing muni einkennast af sættum og menn muni þar reyna að leggja niður deilur innan einstakra félaga. Björn segir reyndar ekkert óeðlilegt að tekist sé á um persónur þegar kemur að aðalfundum. Beðið er með eftirvæntingu eftir tveimur fundum framsóknarmanna í kvöld. Á fundi Félags framsóknarmanna í Kópavogi á að kjósa í stjórn og velja 21 fulltrúa á flokksþingið. Í dag nánast tvöfaldaðist fjöldi félaga þess félags því á annað hundrað manns skráði sig. Búsit er við miklum átakafundi. Hins vegar á að velja á sjötta tug fulltrúa á fundi í Framsóknarfélagi Reykavíkur suður í kvöld. Hverjir verða valdir gæti haft nokkur áhrif á þróun mála á næstunni.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×