Umbrotatímar á Héraði 28. janúar 2005 00:01
Nýtt sameinað sveitarfélag á Héraði, Fljótsdalshérað, er fjölmennasta sveitarfélagið á Austurlandi en það varð til 1. nóvember sl. við sameiningu Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Íbúar Fljótsdalshéraðs voru 3.364 1. desember sl. og fjölgaði um 433 á síðasta ári. Munar þar mestu um fjölgun á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka en íbúum á Egilsstöðum fjölgaði einnig jafnt og þétt á síðasta ári. Samkvæmt fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir að íbúar sveitarfélagsins verði um 3.600 í árslok. Fljótsdalshérað er víðfeðmasta sveitarfélag landsins, tæpir níu þúsund ferkílómetrar að flatarmáli, og Fellbær og Egilsstaðir mynda stærsta þéttbýliskjarnann á Austurlandi með um 2.100 íbúa. Fólksfjölgun á Fljótsdalshéraði, í tengslum við virkjunar- og álversframkvæmdir á Austurlandi, kallar á gífurlega uppbyggingu í sveitarfélaginu og einkennir hún fjárhagsáætlun ársins. Samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að heildartekjur bæjarsjóðs, og stofnana sveitarfélagsins, verði 1.508 milljónir króna. Það er hækkun upp á rúmar 214 milljónir króna á milli ára miðað við rauntölur ársins 2003 hjá sveitarfélögunum sem sameinuðust í Fljótsdalshérað. Af heildartekjum eru skatttekjur áætlaðar 820 milljónir króna, eða 54%, og framlag úr Jöfnunarsjóði 262 milljónir króna eða 17%. Vegna uppbyggingarinnar í sveitarfélaginu, íbúafjölgunar og væntinga um frekari fjölgun, hafa bæjaryfirvöld skuldsett sveitarfélagið töluvert. Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, segir það hafa verið nauðsynlegt til að tryggja vöxt sveitarfélagsins og til að nýta þau tækifæri sem stórframkvæmdirnar á Austurlandi bjóða upp á. "Við höfðum samband við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga fyrir um tveimur árum þegar við sáum fram á þenslutímabilið og höfum síðan þá verið í góðu sambandi við nefndina án þess þó að hún sé að fylgjast sérstaklega með okkur. Við reyndum að hugsa málið frá öllum hliðum og að okkar mati erum við ekki að taka of mikla áhættu varðandi skuldsetningu heldur erum við að taka raunhæfa áhættu," segir Eiríkur. Samkvæmt fjárhagsáætlun yfirstandandi árs verða heildarskuldir og eigið fé sveitarfélagsins í árslok um 2,8 milljarðar króna en þar af verða 1,6 milljarðar langtímaskuldir. Í árslok 2003 tók Austur-Hérað 400 milljóna króna skuldabréfalán þegar ljóst var að sveitarfélögin á Mið-Austurlandi voru að ganga inn í mikið uppbyggingartímabil en fyrir þá lántöku voru heildarskuldir og skuldbindingar sveitarfélaganna þriggja, sem nú mynda Fljótsdalshérað, um 1,6 milljarðar króna. Þar af voru langtímaskuldir um 1,3 milljarðar króna. Eiríkur segir að með uppbyggingarstarfinu á Héraði séu bæjaryfirvöld að horfa til langs tíma. "Hlutverk bæjaryfirvalda er að tryggja að öll nauðsynleg grunnþjónusta sé til staðar svo bæjarfélagið sé vel í stakk búið til að taka á móti því fólki sem hér vill setjast að. Við vitum að sjálfsögðu ekki nákvæmlega hvernig íbúaþróunin verður en í skýrslu sem Nýsir vann á sínum tíma er gert ráð fyrir að 40% starfsmanna í álverinu í Reyðarfirði muni setjast að á Héraði. Við vonumst eftir enn hærra hlutfalli en tíminn mun leiða það í ljós," segir Eiríkur. Af einstökum málaflokkum er gert ráð fyrir að hæstu útgjöldin fari til fræðslu- og uppeldismála á árinu 2005 eða tæpar 740 milljónir króna. Er það tæplega 53% af rekstrargjöldum og ríflega 90% af öllum áætluðum skatttekjum sveitarfélagsins á árinu. Til æskulýðs- og íþróttamála er áætlað að fari tæpar 147 milljónir króna, félagsþjónustunnar um 87 milljónir króna og áætluð útgjöld til menningarmála eru um 41 milljón króna. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar ársins verði samtals 620 milljónir króna. Stærsta einstaka fjárfestingin er bygging nýs leikskóla við Skógarlönd á Egilsstöðum fyrir 254 milljónir króna. Nýbygging gatna mun kosta sveitarfélagið tæpar 100 milljónir króna en á móti koma tekjur af gatnagerðargjöldum. Framkvæmdakostnaður við hitaveitu er áætlaður um 70 milljónir króna og 46 milljónir króna við vatnsveitu. Uppbygging á félagsaðstöðu eldri borgara mun kosta um 40 milljónir króna og viðbygging við Menntaskólann á Egilsstöðum mun kosta sveitarfélagið 38 milljónir króna. Gert er ráð fyrir framkvæmdum við grunnskóla upp á 34 milljónir króna. Uppbygging og vöxtur sveitarfélagsins er mikill, fólksfjölgun kallar á framkvæmdir við ný íbúðarsvæði, nýjar þjónustustofnanir og aðstöðu fyrir ný fyrirtæki. Vegna sameiningar sveitarfélaganna þriggja, sem nú mynda Fljótsdalshérað, er framundan vinna við gerð aðalskipulags fyrir sveitarfélagið. Fjölmörg önnur verkefni á sviði skipulagsmála eru í vinnslu, svo sem skipulag og uppbygging miðbæjar.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira