Innlent

Álver Alcoa fari í umhverfismat

Álver Alcoa í Reyðarfirði þarf að fara í gegnum nýtt, sjálfstætt umhverfismat samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í dag. Dómurinn ómerkti úrskurð umhverfisráðherra frá árinu 2003 sem staðfesti ákvörðun Skipulagsstofnunar um að 322 þúsund tonna álver þyrfti ekki að sæta umhverfismati. Það var Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi alþingismaður, sem stefndi ríkinu og Alcoa vegna framkvæmdanna í Reyðarfirði og telur hann niðurstöðuna stórmerka. Dómurinn féllst hins vegar ekki á kröfu Hjörleifs um að ómerkja ákvörðun umhverfisráðherra um útgáfu starfsleyfis fyrir álverið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×