Yfirvöld lofa bót og betrun í málefnum innflytjenda 11. nóvember 2005 11:16 Lögregla slekkur eld í bíl í Lyon í gærkvöld. MYND/AP
Lögreglan í París býr sig nú undir helgina en talið er að framvinda óeirðanna næstu tvo sólarhringa muni gefa vísbendingu um þróun mála. Yfirvöld í Frakklandi lofa bót og betrun í málefnum ungra innflytjenda og vonast þannig til að lægja óánægjuölduna. Óeirðirnar í Frakklandi hafa nú staðið í tvær vikur, en nokkuð hefur dregið úr þeim undanfarna daga, sérstaklega í París. Þetta er meðal annars rakið til þess að sveitastjórnir hafa margar beitt útgöngubanni eftir að ríkisstjórnin gaf þeim heimild til þess. Engu að síður var kveikt í 463 bifreiðum í nótt og 201 hantekinn vegna óláta. Lögregla vonar að enn dragi úr óeirðunum um helgina, en Frakkar minnast þess að samið var um vopnahlé í fyrri heimsstyrjöldinni þennan dag árið 1918 en hann markaði endalok heimsstyrjaldarinnar. Eru margar stofnanir og fyrirtæki lokuð af þeim sökum í dag. Hluti íbúa í þeim úthverfum Parísar sem verst hafa orðið úti í óeirðunum hyggst í dag standa fyrir friðargöngu í miðborg Parísar og hvetja þannig til þess að endi verði bundinn á uppþotin. Lögregla í París leggur áherslu á að tryggja svæði þar sem ungimenni hafa að jafnaði safnast saman um helgar en hún óttast að óeirðirnar magnist á ný þar sem hún hefur haft spurnir af því að óeirðaseggir skipuleggi uppþot með aðstoð SMS-skeyta og skilaboða á Netinu. Hefur lögreglustjórinn í París bannað fólki að kaupa bensín á litla brúsa til þess að reyna að koma í veg fyrir að óeirðaseggir búi til eldsprengjur, svokallað Mólotov-kokkteila. Jacques Chirac, forseti Frakklands, sagði í gær að yfirvöld yrðu að taka á vandanum í úthverfum borga landsins þar sem innflytjendur eru í meirihluta. Atvinnuleysi þar er mikið meðal ungmenna og er talið að óánægja með aðgerðaleysi stjórnvalda í þeim málum hafi brotist fram í óeirðunum. Fjármálaráðherra Frakklands segist á næstunni leggja fram tillögur um það hvernig fjölga megi störfum í þessum hverfum. Þá berast þær fregnir að dómstólar í norðausturhluta Parísar hafi var undan að rétta í málum óeirðarseggja. Um það bil sextíu mál tengd óeirðunum koma fyrir dómstóla á hverjum degi. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, hefur látið hafa eftir sér að þeir óeirðaseggir sem ekki hafi franskan ríkisborgararétt og verði dæmdir fyrir aðild sína að uppþotunum verði sendir til síns heima en mannréttindahópar vara við því að of mikill flýtir í réttarhöldum geti aukið á reiði óeirðarseggjanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Sjá meira