Sport

Ítalía - Ísland beint á Vísi klukkan 18:45 í dag

Íslenska knattspyrnulandsliðið mætir því ítalska í vináttuleik í Padova á Ítalíu í kvöld.Hægt verður að fylgjast með gangi mála hér á Vísi en leikurinn hefst klukkan 18:45. Þegar er búið að selja 20 þúsund miða á leikinn og er búist við um 25 þúsund manns en leikvangurinn, sem er frekar nýlegur, tekur um 30 þúsund manns. Padova leikur í Serie C en þetta er fyrsti landsleikurinn í borginni í 80 ár. Þrátt fyrir að íslenska liðið hafi fengið á sig fjögur mörk gegn Króatíu á laugardaginn ætla landsliðsþjálfararnir að notast við sama leikkerfi. Þrír byrjunarliðsmenn duttu út vegna meiðsla og kemur meðal annars einn nýliði í þeirra stað. Liðið verður þannig skipað (4-2-3-1): Árni Gautur Arason í markinu, Kristján Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason, Hermann Hreiðarsson og Indriði Sigurðsson. Aftastir á miðjunni verða Pétur Marteinsson og Brynjar Björn Gunnarsson. Gylfi Einarsson verður fremstur á miðjunni, Bjarni Guðjónsson kemur inn fyrir Jóhannes Karl bróður sinn og Grétar Rafn Steinsson byrjar inni á fyrir Arnar Þór Viðarsson. Þá byrjar nýliðinn Hannes Þ. Sigurðsson í fremstu víglínu fyrir Heiðar Helguson en Hannes hefur spilað feikilega vel fyrir U21 árs liðið og skorað meðal annars tvær þrennur. Allir leikmenn íslenska liðsins fá að spreyta sig í leiknum og því ljóst að fjórir nýliðar koma við sögu. Ítalía spilar 4-3-3 gegn Íslandi og aðeins Marco Materazzi, varnarmaður Inter, er eftir af byrjunarliðinu frá leiknum gegn Skotum um helgina sem Ítalía vann 2-0. Ítalska dagblaðið La Gazzetta dello Sport eyðir opnu undir landsleikinn í gær þar sem því er slegið upp að fimm leikmenn Sikileyjarliðsins Palermo verði líklega í byrjunarliði Ítalíu. Þá muni þetta B-lið Ítalíu selja sig dýrt því þarna eru leikmenn sem vilja sanna sig fyrir landsliðsþjálfaranum Marcello Lippi. Leikur Ítalíu og Íslands hefst klukkan 18:45



Fleiri fréttir

Sjá meira


×