Var alltaf mikil strákastelpa 4. mars 2005 00:01 "
Ég hef haft áhuga á tækjum og vélum síðan ég man eftir mér," segir Vilborg Daníelsdóttir 28 ára vörubílstjóri á Akureyri. Vilborg, eða Villa eins og hún er kölluð, hefur keyrt stóra vörubíla síðast liðin fimm árin. Nú starfar hún þó á skrifstofu enda skrifuð inn á fæðingadeild í apríl. "Það er enginn sérstakur áhugi fyrir vélum í fjölskyldunni, nema ég á eina frænku sem keyrir rútu. Ég hef alltaf verið svolítil strákastelpa, hef verið að keppa á vélsleðum og verið í öðru strákasporti," segir Villa en bætir við að þar sem nú styttist í fæðinguna hafi hún gaman af því að prófa skrifstofustarfið líka. "Ég get náttúrulega ekki setið undir stýrinu með bumbuna út í loftið en um leið og barnið verður fætt verð ég mætt aftur undir stýri. Eins hef ég nánast kúplað mig út úr vélsleðunum þar sem ég er farin að sinna fjölskyldunni. Vinnan og börnin eru númeri eitt hjá mér núna." Hún segist þó vera dugleg að hitta vinkonur sínar og hitti þær gjarnan í saumaklúbbum. "Ég get alveg verið gamaldags í mér og kann bæði að prjóna og hekla. Vinkonurnar hafa alveg áhuga á að tala um vélar og bíla og hafa fullan skilning á þessu hjá mér. Ég þekki líka mikið af strákum sem ég get rætt við enda hefur maður eignast marga félaga þegar maður er á ferðinni." Lestu meira í Magasíni sem fylgir DV í dag
Menning Mest lesið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Giftu sig með tólf daga fyrirvara og mættu í krabbameinsmeðferð daginn eftir Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni Fleiri fréttir Giftu sig með tólf daga fyrirvara og mættu í krabbameinsmeðferð daginn eftir „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Sjá meira