Sprengju kastað inn á vinnumarkaðinn 9. desember 2005 06:00 Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara segir að síminn hafi vart stöðvað á skrifstofu félagsins. Leikskólakennara séu mjög ósáttir og vilji leiðréttingu sinna kjara.
Mikil ólga er meðal leikskólakennara vegna nýs kjarasamnings Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Samkvæmt samningnum eru ófaglærðir deildarstjórar á leikskólum með hærri laun en faglærðir. Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segist þegar hafa óskað eftir viðræðum við launanefnd sveitarfélaga. Brýnt sé að leysa málið strax fyrir áramót. "Auðvitað er það fagnaðarefni að búið sé að semja við þennan hóp og kjör hans bætt enda hefur mikil mannekla verið á leikskólunum," segir Björg. "Það sem kemur hins vegar á óvart, og er í raun alveg ótrúlegt, er að ófaglærðir deildarstjórar skuli vera með hærri laun en faglærðir. Það er í raun óhætt að segja að með þessu hafi sprengju verið kastað inn á vinnumarkaðinn. Ég vil trúa því að um yfirsjón hjá samninganefndunum hafi verið að ræða en þetta er vant fólk og því erfitt að meta það svo." Leikskólabörn að leik Björg segir að síminn hafi vart stoppað á skrifstofu Félags leikskólakennara síðan þetta varð ljóst. "Leikskólakennarar eru eðlilega mjög reiðir. Þeim finnst, sem eðlilegt er, að með þessu sé verið að sýna menntun kennara lítilsvirðingu." Tæpt ár er síðan kjarasamningur leikskólakennara var undirritaður. Í bókun með samningnum kemur fram að hægt sé að óska viðræðna um endurskoðun hans ef breytingar verði á launum annarra starfsmanna leikskóla sem sinna sambærilegum störfum og leikskólakennarar og áhrif hafa á launaviðmiðun í kjarasamningum þeirra. Björg segir að launanefnd sveitarfélaga komi saman í næstu viku. "Ég reikna með því að þá verði tekin ákvörðun um að hefja viðræður við okkur." Félag grunnskólakennara og Skólastjórafélag Íslands sendu í gær frá sér sams konar ósk um endurskoðun á gildandi kjarasamningi með tilvísun í bókun sem honum fylgir.
Innlent Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira