Mestu kvalir sem ég hef liðið 23. apríl 2005 00:01
Körfuknattleiksmaðurinn Logi Gunnarsson er nú loksins búinn að ná sér eftir þrálát meiðsli í öxl og horfir hann björtum augum á framtíðina. Í samtali við Fréttablaðið fer Logi yfir síðasta eina og hálfa árið hjá sér í Þýskalandi, þar sem hann spilar með úrvalsdeildarliðinu Giessen 46ers. „Þessi meiðsli hafa gert það að verkum að maður er farinn að meta heilsuna meira en áður. Ég hef verið heill í allan vetur og það er það sem skiptir mestu máli. En ég hef ekki fengið að spila eins mikið og ég er vanur og auðvitað er ég ekki sáttur með það. En öxlin er í lagi og það er fyrir öllu," segir Logi. Það var í nóvember árið 2004 sem öxlin umrædda fór fyrst að vera til trafala. Þá lenti Logi í samstuði á æfingu og fór hann úr axlarlið. „Þeir náðu að smella honum í aftur fljótlega en hann fór síðan aftur skömmu síðar. Þá var alveg ljóst að eitthvað mikið var að og var mér skipað að hvíla mig í tvo mánuði," segir hann. Logi var á þessum tíma á sínu fyrsta ári hjá Giessen og hafði staðið sig framar vonum eftir að hafa komið til liðsins frá 1. deildarliðinu Ulm. Fjölmiðlar töluðu um Loga sem einn besta unga leikmann deildarinnar og því komu meiðslin á versta mögulega tíma. Öxlin vildi ekki aftur í liðinn Þegar tveggja mánaða hvíldinni lauk kveðst Loga hafa liðið vel og átti hann ekki von á öðru en að öxlin hafði jafnað sig. Annað átti eftir að koma á daginn. „Fyrsti leikurinn eftir meiðslin var alveg rosalegur og var leikstjórnandinn okkar meiddur. Þess vegna spilaði ég meira en ég hefði átt að gera. Ofan á það fór leikurinn í framlengingu og ég neita því ekki að þá var ég orðinn örþreyttur. Og það koma að því að eitthvað gaf sig. Í blálokin hoppaði ég upp í frákast og þá small öxlin aftur úr lið," segir Logi. Við tóku aðrar sex vikur á hliðarlínunni. „Eftir á að hyggja hefði ég átt að fara að læknisráði og fara í aðgerð strax á þessum tímapunkti," segir Logi, sem þráaðist við og vildi reyna að láta öxlina gróa með hvíldinni einni saman. Í fyrstu virtist sem sú ákvörðun hefði verið rétt – Logi náði að spila nokkra leiki af fullum krafti og segist hann sjálfur hafa fundið sig afar vel. En gleðin var skammvinn. Meiðslasagan var rétt að hefjast og á æfingu daginn eftir að hafa spilað einn sinn besta leik í treyju Giessen dundi ógæfan yfir á ný – öxlin gaf sig einu sinni enn. Og í þetta skiptið fór hún algjörlega úr lið. „Liðurinn fór alveg úr og hafði það aldrei gerst áður," segir hann. Þegar slíkt gerist fylgir venjulega mikill sársauki og segir Logi engu logið um það. Hann lýsir næstu klukkustundum sem þeim verstu sem hann hafi nokkru sinni upplifað. „Öxlin vildi ekki fara aftur í liðinn. Læknarnir voru farnir að setja lappirnar undir handakrikann á mér til að geta náð betra taki á hendinni á mér. En það var sama hversu oft og fast þeir rykktu, ekkert gekk," segir Logi þegar hann rifjar upp kvalirnar. „Þetta var það versta sem ég hef nokkurn tíma lent í. Eftir klukkutíma af árangurslausum tilraunum þar sem var meðal annars búið að dæla í mig morfíni og öðrum lyfjum gáfust þeir upp. Ég var fluttur á sjúkrahús þar sem ég var svæfður og þá gátu þeir lagað öxlina í friði." Til Íslands í endurhæfingu Eftir þessa óskemmtilegu lífreynslu var ekki um annað að ræða en fara í aðgerð og kaus Logi að fara í hana á Íslandi. Að henni lokinni tók við endurhæfing sem var undir handleiðslu Benedikts Guðmundssonar, þjálfara Fjölnis. Benedikt hefur gert nokkuð af því að sjá um einstaklingsþjálfun margra af bestu körfuboltamönnum landsins, og fyrir utan Loga má nefna Jón Arnór Stefánsson. Eftir að hafa æft allt upp í þrisvar á dag á Íslandi síðasta sumar mætti Logi aftur út til Giessen í ágúst. Þá var honum gefið grænt ljós á að spila að nýju. „Ég er búinn að vera í góðum gír í vetur og er kominn í fínt form. Ég er duglegur að gera styrktaræfingar og læknar segja að öxlin eigi að halda," segir Logi. Eins og áður segir hefur Logi mátt þola mikla bekkjarsetu í vetur og er það nokkuð sem hann sættir sig ekki við. En þrátt fyrir að hann sé ekki inni í myndinni hjá þjálfara Giessen horfir Logi á björtu hliðarnar. Hann er á síðasta ári samningsins við liðið og hefur hug á því að leita á önnur mið í sumar. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég lendi í því að spila svona lítið en ég er löngu búinn að ákveða að fyrst ég spila nota ég bara tímann til að fara á aukaæfingar með aðstoðarþjálfaranum og reyni að gera mig tilbúinn fyrir næsta verkefni, hvort sem það verður hér í Þýskalandi eða í einhverju öðru landi," segir Logi, sem er laus allra mála í júní. „Ég ætla að nota þann tíma til að bæta mig. Ég æfi daglega með mjög öflugum leikmönnum og þó ég sé ekki að spila mikið finnst mér ég hafa verið að bæta mig. Það eina sem ég get gert er að reyna að vera jákvæður og halda mínu striki. Ég er búinn að eyða allt of miklum tíma í körfubolta á ævinni til að vera eitthvað að bakka út núna," segir Logi og er staðráðinn í því að spila körfubolta erlendis eins lengi og mögulegt er. „Ég hef stefnt að atvinnumennsku frá því að ég var lítill patti og ég ætla mér að vera í henni næstu árin. Hvar svo sem það verður eftir sumarið verður bara að koma í ljós. En ég er ekki á heimleið."
Körfubolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Brasilía - Marokkó | Fyrsti stórleikurinn Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Elvari og félögum sópað í sumarfrí „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Getur Vinicius fengið brasilísku þjóðina til að elska sig? Leggja inn mótmæli vegna meðferðarinnar á Partey HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu „Það er alltaf gaman að vera á þeim stað í töflunni“ „Stelpurnar voru bara geggjaðar“ Sjá meira