Ekkert þokast í máli Arons Pálma 10. nóvember 2005 09:30 MYND/Rohn Weesler
Ekkert hefur þokast í máli Arons Pálma Ágústssonar frá því náðunarbeiðni hans var hafnað í byrjun október. Utanríkisráðuneytið kveðst ekki sjá sér fært að aðhafast í málinu en það segja forsvarsmenn RJF-hópsins vonbrigði enda hefði fyrir löngu átt að vera búið að gera málið pólitískt. Aron gefst þó ekki upp. Fylkisstjórinn í Texas hafnaði sem kunnugt er náðunbeiðni Arons Pálma Ágústssonar sem dæmdur var í tíu ára fangelsi í fylkinu fyrir átta árum. Aron heldur enn til í Beaumont í Texas og segir Einar S. Einarsson, talsmaður RJF-hópsins, að Aron eigi nú að óbreyttu eftir að afplána tæp tvö ár í stofufangelsi. Sjálfur telur Aron vikurnar og reiknast nú til að hafa lokið 411 vikum af dóm sínum. Það er 411 vikum meira en Aron hefði þurft að afplána hér á landi fyrir brot sitt. Aron er nú í háskólanámi í sálfræði en hefur sökum nýfengins áhuga á líkamsrækt og vilja til að koma sér í betra form ákveðið að taka heilsurækt sem aukafag. Árangur þessa þrautseiga unga manns er enda slíkur að strax eru fokin ein fimm kíló, og það á einungis nokkrum vikum. RJF-hópurinn hefur ásamt velunnurum staðið straum af háskólanámi Arons sem kostar ekki undir hálfri milljón á ári. Einar S. Einarsson segir ekkert hafa þokast varðandi náðun Arons eða heimkomu. Síðasta höggið hafi komið þegar utanríkisráðuneytið íslenska tjáði hópnum að þar á bæ yrði ekkert aðhafst frekar. Sú ákvörðun kom í kjölfar bréfaskipta ráðuneytisins við bandarísk stjórnvöld. Einar segir það vonbrigði að íslensk stjórnvöld skuli ekki fyrir löngu hafa gert málið pólitískt og þannig krafið Bandaríkjamenn um svör og lausn drengsins, annað sé hneisa. Ættingjar Arons og vinir í RJF-hópnum eru í daglegu sambandi við Aron sem þrátt fyrir mótbyrinn gengur brattur til skóla á hverjum degi.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti Sjá meira