Útilokaði nánast Samfylkinguna 14. október 2005 00:01
Davíð Oddsson fráfarandi formaður Sjálfstæðisflokksins gerði það eitt af sínum síðustu verkum sem formaður, í setningaræðu sinni á landsfundinum í gær, að nánast útiloka stjórnarmyndun með Samfylkingunni, þegar þar að kemur. Davíð rifjaði upp að í stjórnarsáttmálanum með Alþýðuflokki árið 1978 hafi verið stefnt að löggjöf gegn einokun og hringamyndun. Hann hafi þá og hafi enn trú á gildi heilbrigðrar samkeppni fyrir fólkið í landinu en sé andvígur því að hún snúist upp í andhverfu sína. Davíð sagði enn fremur að hann hefði hrósað Alþýðuflokknum árið 1978 fyrir rétta afstöðu í málinu þá og því væri enn dapurlegra að ekki aðeins formaður Samfylkingarinnar heldur einnig sumir þingmenn hennar, eins og ömurlegt uppistand í þinginu síðastliðinn þriðjudag hefði sýnt, virtust naumast líta lengur á Samfylkinguna sem flokk en fremur sem tiltölulega léttvægt dótturfélag auðhrings. Sjálfstæðismenn gætu því ekki vænst stuðnings úr þeirri átt. Aðspurð um ummæli Davíðs Oddssonar segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, að hún geri ekki mikið með þau. Þau segi meira um Davíð en þá sem hann hafi fjallað um og hún kippi sér ekki upp við sendingar úr þessari átt. Það veki auðvitað athygli hvað honum verði tíðrætt um Samfylkinguna og hún geti ekki skilið það öðruvísi en svo að hann telji að það sé skeinuhættasti keppinauturinn um fylgi fólks. Aðspurð hvort hún telji þau orð Davíðs að hann geti ekki vænst stuðnings frá Samfylkingunni að hann telji loku fyrir það skotið að myndi ríkisstjórn með flokknum segir Ingibjörg að hún viti ekki hvað Davíð sé að hugsa. Af samhengi orðanna hafi hún lesið að Davíð teldi að ekki væri að vænta stuðnings frá Samfylkingunni við sértæka löggjöf gegn hringamyndun.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fleiri fréttir Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Glæný könnun og þungavigtarfólk í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Sjá meira