Þolinmæði leikskólakennara á þrotum 14. desember 2005 23:16 MYND/GVA
Þolinmæði leikskólakennara í Reykjavík er þrotum. Þeir saka borgaryfirvöld um að sýna menntun sinni lítilsvirðingu og hroka og krefjast leiðréttingar á kjörum sýnum hið fyrsta. Launanefnd sveitarfélaga hyggst á næstunni funda með forystumönnum Félags leikskólakennara vegna málsins. Mikill urgur er í leikskólakennurum vegna nýgerðra kjarasamninga Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkuborgar en þeir hafa leitt til þess að ófaglærðir á leikskólum borgarinnar fá nú sumir hverjir hærri laun en menntaðir leikskólakennarar. Reykjavíkurdeild Félags leikskólakennara efndi til fjölmenns fundar í kvöld af þessu tilefni og þar var mikill hiti í fólki. Fram kom að leikskólakennarar væru langþreyttir eftir erfitt haust þar sem erfiðlega hefur gengið að manna í allar stöður á leikskólunum og álag á starfsfólk því mikið. Við þetta bættust nú nýju samningarnir og þau skilaboð frá borgarstjóra að samningar við leikskólakennara yrðu ekki teknir upp fyrr en þeir rynnu út í lok september. Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segir að það hafi hleypt illu blóði í félagsmenn þegar borgarstjóri hafi ekki viljað hitta þá og það þyki félaginu miður. Guðrún Jóna Thorarensen, aðstoðarleikskólastjóri í Foldakoti, hefur nýverið snúið aftur til starfa í leikskóla eftir að hafa menntað sig. Hún gagnrýnir borgaryfirvöld fyrir skilningsleysi og segir hættu á að leikskólakennarar hverfi frá störfum sínum verði kjör þeirra ekki bætt. Hún segir furðurlegt að borgaryfirvöld reki fyrirtæki og komi ekki auga á vandann innan þess. Fyrirtækinu gangi illa vegna launastefnunnar og undarlegt sé að leikskólakennarar þyrfi að benda þeim á það. Borgaryfirvöld hljóti að vilja reka sitt fyrirtæki vel og hafa starfsmenn sína ánægða, fara yfir launamálin og leiðrétta launin. Það sé sorglegt að fólk þurfi að hóta uppsögn, þeir fáu sem eftir séu. Launanefnd sveitarfélaga fundaði í dagþar sem tekið var fyrir erindi á Félagi leikskólakennara vegna málsins. Þar var samþykkt að efna til fundar í samstarfsnefnd þessara tveggja aðila og segir Gunnar Rafn Sigurbjörnsson, formaður launanefndarinnar, að hann vonist til þess að fundur verði á næstu dögum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Fjármálaráðherra vinni gegn fólkinu Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Sjá meira