Misskildi sitt eigið frumvarp 14. desember 2005 20:54 Valgerður Sverrisdóttir MYND/GVA
Iðnaðarráðherra segist hafa misskilið sitt eigið frumvarp um breytingu á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Það sé ekki rétt að handhafar rannsóknarleyfa á auðlindum í jörðu eigi að hafa forgang að virkjunarleyfi. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hefði stutt frumvarpið ef ákvæði um vilyrði ráðherra fyrir nýtingarleyfi hefði verið fellt brott. Í tilkynningu frá Valgerði Sverrisdóttir sagði í dag að vegna ónákvæmra upplýsinga frá ráðuneytinu hefði miskilnings gætt um efni frumvarpsins, eða hugsanlegan forgang rannsóknarleyfishafa á útgáfu virkjunarleyfis. Ef marka má það sem Valgerður sagði sjálf í viðtali við NFS á lokadegi þingsins var það hún sem miskildi frumvarpið. Nú segir Valgerður að ónákvæmnin varði ákvæði um jarðvarma í auðlindalögunum. Jóhann Ársælsson segir að Samfylkingin hefði verið tilbúin til að styðja frumvarpið ef ákvæði í fimmtru grein þess um vilyrði ráðherra fyrir nýtingarleyfum yrði fellt brott. Valgerður Sverrisdóttir segir það séu alvarlegar rangfærslur að ekki verði gert ráð fyrir auðlindagjaldi. Landeigendum verði greitt fyrir land, annars vegar ef samningar náist eða í eignarnámi. Sé um að ræða nýtingu auðlinda á þjóðlendum verði greitt fyrir það samkvæmt lögum um þjóðlendur. En hvorugt þessara atriða kemur í staðinn fyrir sérstakt auðlindagjald. Valgerður Sverrisdóttir bendir á að skipa eigi nefnd til að móta starfsreglur sem taki mið af tillögum auðlindanefndar. Jóhann Ársælsson þingmaður Samfylkingarinnar segir útúrsnúninga að rugla saman greiðslum fyrir land og auðlindagjaldi. Ef frumvarpið hefði verið eins og ráðherrann greinilega hélt, það er að segja veitt ráðherra vald til að úthluta vilyrði fyrir virkjunarleyfum, hefði ekkert auðlindagjald verið innheimt því nefndin hafi ekki tekið til starfa.
Fréttir Innlent Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira