Sendi ríkislögreglustjóra bréf varðandi fyrrum forstjóra Byggðastofnunar 14. desember 2005 23:37 MYND/GVA
Magnús Þór Guðmundsson, þingmaður Frjálslyndra, sendi ríkislögreglustjóra bréf þar sem hann bendir á ummæli Kristinn H. Gunnarssonar varðandi afglöp fyrrum forstjóra Byggðastofnunar í starfi. Magnús Þór telur að afglöpin varði við lög, eigi fullyrðingar Kristins við staðreynd að styðjast, og furðar sig á því að málið hafi ekki verið rannsakað af lögreglu á sínum tíma. Samkvæmt Kristni átti fyrrum forstjórinn meðal annars að hafa selt hlutabréf í eigu Byggðastofnunar án vitundar stjórnarinnar, og ákveðið sjálfur hverjir fengu keypt og á hvaða verði. Þá hafi Byggðastofnun útvegað honum húsnæði og hafi hann átt að eiga 5% á móti 95% Byggðastofnunar í húsinu. Síðar hafi svo komið í ljós að hann hafi heimildalaust látið stofnunina borga sinn fimm prósent hlut. Eftir að málið komst upp var þessum fyrrverandi forstjóra Byggðastofnunar veittur 20 milljón króna starfslokasamningur. Þá spyr Magnús Þór hvers vegna Kristinn H. Gunnarsson, þáverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar, og Valgerður Sverrisdóttir, byggðamálaráðherra, hafi ekki gert neitt í málinu. Aðspurður hvers vegna málið hafi ekki farið fyrir lögreglu á sínum tíma sagði Kristinn H. Gunnarsson að staðreyndir málsins hafi alltaf legið fyrir og að hann sjái ekki sérstaka ástæðu fyrir lögreglurannsókn á málinu, einstaklingar sem tengjast því verði einfaldlega að eiga þetta við sig. Kynjamisrétti?Magnús Þór bendir einnig á að fyrrverandi forstjóri Byggðastofnunar hafi verið leystur úr starfi með 20 milljón króna starfslokasamning eftir að hafa orðið upplýstur að mjög alvarlegum afglöpum í starfi. Á sama tíma hafi Valgerður H. Bjarnadóttur verið hrakin með sneypu og skömm úr starfi fyrir ásakanir sem reyndust ekki sannar. Hún hafi fengið sex mánaða biðlaun við starfslok.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Fleiri fréttir Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Sjá meira