Þurfti ekki að hugsa sig um 8. júlí 2005 00:01
Síðara mark Skagamanna á KR-vellinum í fyrrakvöld verður lengi í minnum haft og margir eru farnir að tala um það sem mark ársins. Það vildi þannig til að Igor Pesic, miðjumaður ÍA, fékk boltann á eigin vallarhelmingi eftir að Kristján Finnbogason, markvörður KR, átti misheppnaða aukaspyrnu framarlega á vellinum og var of seinn að hlaupa til baka. Pesic hugsaði sig ekki um tvisvar og lét vaða á markið af næstum sextíu metra færi og náði að skora. Fréttablaðið sló á þráðinn til Pesic og spurði hann út í atvikið. "Ég var búinn að vera að fylgjast með Kristjáni markverði allan leikinn og ég tók eftir því að hann leikur mjög framarlega á vellinum og virkar stundum eins og aftasti varnarmaðurinn hjá þeim. Svo þegar aukaspyrnan hans mistókst og Pálmi skallaði hana fyrir fætur mér, kom aðeins eitt til greina - að láta vaða á markið," sagði Pesic. Mark hans var enn sætara þegar haft er í huga að það tryggði Skagamönnum fyrsta sigurinn á KR í Vesturbænum í tólf ár. "Strákarnir í liðinu sögðu mér frá því hvað væri í húfi þegar þessi lið mætast og því var það mér sérstaklega mikilvægt að ná að leggja mitt að mörkum í sigrinum. Langskot eru í rauninni mín sterkasta hlið sem leikmanns og ég veit að ég hef alla burði til að gera svona hluti á knattspyrnuvellinum. Ég hef mikla trú á sjálfum mér, annar gæti ég ekki gert svona hluti," sagði geðþekki Serbinn, sem sagðist ekki æfa svona skot sérstaklega. "Mér líður mjög vel á Íslandi og það er reglulega fínt að vera á Akranesi að spila fótbolta, þó það taki mig eitthvað lengri tíma að komast alveg inn í boltann sem er spilaður hérna. Ég hef enn ekki sýnt mínar bestu hliðar og hlakka mikið til að sýna hvað í mér býr í sumar," sagði Pesic að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Handbolti Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Ferill Jake Paul í hættu Sport Leik lokið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Íslenski boltinn McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Golf Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum Fótbolti Fleiri fréttir Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Leik lokið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Safonov hetjan er PSG tryggði titilinn í toppslag Inter er bikarmeistari Ítalíu „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Birta mynd af „njósnara“ Southampton „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn“ Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Þetta er svo asnalegt hjá Kane Ármann yngir upp um þrjátíu ár Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Arnar velur tvo landsliðshópa: Viktor Bjarki fær kallið Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum „Þetta er allt annað Fram-lið“ Besta deildin áfram á Sýn Sport Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Sjá meira