Sílabrestur kemur niður á varpi 1. september 2005 00:01
Varp fugla sem reiða sig á sandsíli til átu virðist í ár hafa misfarist í stórum stíl. "Þetta kemur meðal annars niður á lunda, en afar lítið hefur verið um að ungar komist á legg. Svo vitum við að þetta á við um kríu og ýmsa fleiri sílafugla, að varpið hefur gengið illa hjá þeim víðast hvar á landinu," segir Kristinn Haukur Skarphéðinsson dýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun. Kristinn Haukur bendir þó á að ekki hafi mikið að segja þó svo að eitt ár detti úr í varpi hjá svona fuglum vegna langlífis þeirra. "En ef hins vegar er viðkomubrestur ár eftir ár þá mun náttúrlega stofnunum hnigna. En við þekkjum til dæmis frá Norðursjó og Norður-Noregi að lundastofninn þar hefur verið á hraðri niðurleið og vonum að við séu ekki að sigla inn í slíkt tímabil hér," segir hann, en orsökin var sú sama þar, brestur í sílastofni. Hann segist telja að lítið sé fylgst með stærð sílastofna, nema í gegn um þorskmaga. "Þetta er dæmigert fyrir tegundir fiska sem fá ekki þá athygli sem þeim ber, en eru undirstöðufæða fyrir margar sjófuglategundir," segir hann og telur áhyggjuefni að ekki sé betur fylgst með stærð sílastofna.
Fréttir Innlent Mest lesið 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Erlent Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Innlent „Hann stal henni“ Erlent Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Innlent Veðurspáin fyrir helgina að skána Innlent Pokrovsk riðar til falls Erlent Langþreyttur á bensínbrúsum og „bílakirkjugarði“ Innlent Vill greiða sex milljarða tryggingu til að losna úr haldi Erlent Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Innlent Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Innlent Fleiri fréttir Stöðfirðingar þreyttir á ferðamönnum sem geri þarfir sínar um allan bæ Fagnar tillögu Sigurjóns og segir veiðiráðgjöf Hafró ranga Langþreyttur á bensínbrúsum og „bílakirkjugarði“ Úkraínumenn vilja fá Íslendinga í almannavarnabandalag Risaskjálfti í Kyrrahafi og bensínbrúsabílar í Breiðholti Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Skýrsla Guðlaugs Þórs frá 2018: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið“ Veðurspáin fyrir helgina að skána Fjallabaksleið syðri lokuð vegna vatnavaxta Engin nóróveira í Laugarvatni Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Reyndi að skemma bíl og hljóp svo undan lögreglu Brennisteinsdíoxíð gæti borist um suðvesturhornið Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Fundu týnda brú við Suðurlandsbraut Engin framlög til jarðganga en óljós áform um innviðafélag Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ökumaður stöðvaður og kærður fyrir fjölmörg umferðalagabrot Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Versta sviðsmyndin, galið greiðslumat og óvæntur fundur Fimm prósent fallið fyrir ástarsvikum Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Engin fjármögnun gereyðingarvopna á Íslandi Enn varað við svikapóstum: „Við hlökkum til að fá jákvæða svörun frá þér“ Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Sjá meira