Innlent

Ljúka ekki verkum sem hafin voru

Slippstöðin á Akureyri var úrskurðuð gjaldþrota í morgun. Skiptastjóri þrotabúsins óskaði ekki eftir því að starfsmennirnir lykju þeim verkum sem hafin voru. Héraðsdómur Norðurlands eystra féllst í morgun á gjaldþrotabeiðni Slippstöðvarinnar á Akureyri. Samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar er nú unnið að því að koma saman nýju félagi til að taka við af Slippstöðinni. Hafa nokkrir aðilar verið nefndir til skjalanna en enginn þeirra hefur þó tekið endanlega ákvörðun. Bæjaryfirvöld eru að skoða hugsanlega aðkomu að nýju félagi en Hafnarsamlag Norðurlands, sem að stærstum hluta er í eigu Akureyrarbæjar, á upptökumannvirkin á athafnasvæði Slippstöðvarinnar. Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kaupfélags Eyfirðinga, staðfesti við fréttastofu að KEA væri að skoða hugsanlega aðkomu að endurreisn Slippstöðvarinnar en sagði ákvörðun þessa efnis þó ekki hafa verið tekna. Þar að auki hafa að minnsta kosti þrjár vélsmiðjur sýnt áhuga á að koma að rekstri nýs félags en samkvæmt heimildum fréttastofu eru það Stálsmiðja í Reykjavík, Skipasmíðastöðin Þorgeir og Ellert á Akranesi og Vélsmiðjan Hamar á Eskifirði. Sigmundur Guðmundsson, lögmaður á Akureyri, var skipaður skiptastjóri þrotabúsins og í dag átti hann fund með starfsmönnum Slippstöðvarinnar. Þorsteinn Haraldsson, trúnaðarmaður starfsmanna, segir hann hafa lýst stöðu mála fyrir starfsmönnum og að þrotabúið myndi ekki óska eftir því starfsmenn ynnu hjá því og þar með séu þeir atvinnulausir. Aðspurður hvernig hljóðið sé í mannskapnum segir Þorsteinn það þungt. Þeir sjái ekkert að það gerist neitt næstu daga. Spurður um þau verkefni sem unnið hafi verið að þegar fyrirtækið fór í gjaldþrot segir, t.d. viðgerðir við skip, segir Þorsteinn að þau séu væntanlega stopp í bili, en annars verði skiptastjóri að svara því. Hann hafi að minnsta kosti ekki óskað eftir því að haldið yrði áfram í þeim verkum. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×