Innlent

Krefjast afturköllunar veiðileyfis

Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að umhverfisráðuneytið afturkalli þegar leyfi til kanínuveiða í Vestmannaeyjum, enda brjóti það í bága við lög. Kanínur séu búfé ellegar gæludýr og verndaðar samkvæmt þrennum íslenskum lögum. Í bréfi sem Dýraverndunarsamband Íslands sendi umhverfisráðherra á föstudag, kemur fram að umhverfisráðherra hafi veitt leyfi til kanínuveiða í Vestmannaeyjum frá árinu 2002. Meindýraeyðir bæjarins og félagar í skotveiðifélagi Vestmannaeyja skutu á sjöunda hundrað kanína í ár og svipaðann fjölda í fyrra og sjást þess nú merki að stofninn sé að minnka. Kanínurnar voru upphaflega gæludýr sem sluppu eða var sleppt og hafa dafnað vel og fjölgað sér ört, svo ört að nú er litið á þær sem hálfgerða plágu. Því spyrja margir sig hvers vegna Dýraverndunarsamtökin vilji ekki að þeim sé fækkað. Sigríður Ásgeirsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands, segir að ekki séu til haldbær rök um hvaða tjóni kanínurnar séu að valda. Eina skýringin sem hún hafi fengið sé sú að kanínurnar fari í lundaholurnar og víkki þær og lundinn þurfi jafnvel að flytja sig. Ekkert segi neitt um það að lundinn hafi slæmt af því að færa sig. Kanínan snerti hvorki við lundanum sjálfum né eggjum hans. Sigríður segir að það sem skipti líka máli sé að kanínur séu búfé. Vestmannaeyjar kvarta yfir því að kanínurnar leggist á trjágróður og plönturækt í görðum. Sigríður segir þungamiðju málsins að samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spenndýrum sé beinlínis ólögleitt að veiða kanínur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×