Hlemmur aftur til virðingarvegs 20. júní 2005 00:01
Um tvö hundruð manns mættu á fund borgaryfirvalda að Hlemmi í gær en þar voru kynntar fyrir íbúum miðbæjarins framtíðarskipulagshugmyndir á nokkrum reitum við Hlemm og í nágrenni. Sá staður hefur tekið stakkaskiptum undanfarna mánuði en aðeins er um fyrstu skref að ræða til að koma svæðinu í heild aftur til vegs og virðingar. Undir yfirskriftinni Hlemmur plús kynntu áhugasamir sér þær hugmyndir sem á borði eru um Hlemm sjálfan og næsta nágrenni. Þar á meðal eru stórar hugmyndir um byggingu íbúðar- og skrifstofuhúsnæðis milli Einholts og Þverholts, Ármannsreitinn svokallaða þar sem íþróttafélagið Ármann hefur haft aðsetur um langa hríð og Höfðatorg sem rísa á í Borgartúni. Gestir sem til máls tóku lýstu efasemdum um að bygging þúsund íbúða á svæðum nálægt Hlemmi hefðu ekki í för með sér stóraukna bílaumferð með tilheyrandi umferðarhnútum. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs borgarinnar, sagði fundinn hafa verið gagnlegan. Mörg sjónarmið íbúa og annarra hafi komið fram og tilgangnum þannig náð. "Við erum að fylgja því sem við höfum verið að gera mjög víða undanfarið að kynna allar breytingar strax á byrjunarstigi fyrir íbúum og vinna þannig að skipulagsmálum í meiri sátt við alla sem að koma. Þær hugmyndir sem komu hér fram verða skoðaðar og svo höldum við annan fund í haust þegar meiri skriður er kominn á málið."
Fréttir Innlent Mest lesið Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Innlent Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Innlent Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel Fá tímabundna undanþágu frá viðskiptaþvingunum Í samtali við norsku kafarana hvort þeir komi aftur Segir tugi þúsunda sendingarkostnað vera dulinn landsbyggðarskatt Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Eldislaxar í Haukadalsá, Gnoðarvogur og samgöngur á Vesturlandi Segir dæmi um að fjölskyldur hafi lokað á fólk vegna BDSM Snýr aftur sem bæjarstjóri eftir árslangt veikindaleyfi Nýir ofnar skemmast vegna súrefnis í heita vatninu Fleiri eldislaxar í Haukadalsá: „Þetta lítur alls ekki vel út“ Helgi Vilberg Hermannsson er látinn Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Sjá meira