Spurning um trúverðugleika bankans 3. desember 2005 13:00 MYND/Vísir
Seðlabankinn tapaði trúverðugleika í gær, segir Greining Íslandsbanka, með of lítilli stýrivaxtahækkun. Bankinn segir að krónan veikist eftir helgi. Mun mildari tónn var í Peningamálum, ársfjórðungsriti Seðlabanka Íslands, sem birt var í gær, gagnvart stöðu efnahagsmála en í útgáfu ritsins í lok september. Þá kvað við harðari tón en stýrivextir voru þá hækkaðir um 0,75 prósentustig. Stýrivextir bankans verða nú 10,50 prósent frá og með 6.desember næstkomandi. Greiningadeildir bankanna sendu frá sér álit í gær eftir að ljóst var hver hækkun stýrivaxta bankans yrði. Í áliti Íslandsbanka segir að ákvörðun bankans sé óheppileg fyrir trúverðugleika og verðbólgumarkmið Seðlabankans. Hækkun upp á einungis 0.25 prósentustig sé lítil, segir Íslandsbanki, í ljósi þess að verðbólguspá Seðlabankans bendir til að verðbólga verði langt yfir markmiðum bankans ef litið sé 12-24 mánuði fram í tímann. Seðlabankinn gefi heldur ekkert út um hvort framhald verði á hækkunum stýrivaxta líkt og gert var við síðustu hækkun. Segir greiningardeildin jafnframt að búast megi við því að krónan lækki við opnun markaða á mánudag. Í Vegvísi Landsbankans segir hins vegar að ákvarðanir Seðlabankans hafi verið nokkuð hlutlausar og ættu ekki að hafa afgerandi áhrif á gjaldeyrismarkaðinn. Greiningardeild KB-banka tekur í sama streng og greiningardeild Íslandsbanka og segir hættu á að vaxtavæntingar markaðarins hliðrist aftur niður vegna ákvörðuninnar. Það hafi meðal annars í för með sér lækkun á gengi krónunnar. Verðbólguvæntingar geti hækkað á nýjan leik og ávinningurinn síðan í september þá tapast.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira