Hraun á Kaffi Vín í kvöld 10. mars 2005 00:01
Hljómsveitin Hraun mun í kvöld leika lax og synda aftur til gotstöðva sinna á Kaffi Vín, þar sem sveitin mun leika frumsamið efni sitt órafmagnað. Sveitin, sem varð til sem spunaævintýri á Kaffi Vín fyrir tæpum tveimur árum, hefur undanfarin misseri staðið í rannsókna- og þróunarstarfi á svokölluðu Tónleika-Partýi, þar sem dagskrá hefst á tónleikum með frumsömdu efni, en síðan færist áherslan yfir á dansvænna efni og kæruleysið tekur við. Að sögn liðsmanna hefur þetta form tónlistarflutnings vakið mikla lukku, enda fjöldi fólks sem langar til að upplifa tónleika fyrripart kvölds en skemmta sér við meiri gleði seinni partinn. Á fimmtudagskvöldið verður þó þyngri áhersla lögð á lágstemmdari dagskrá og innilegheit, enda er Kaffi Vín innilegur staður sem hentar vel undir órafmagnaðan flutning auk þess sem hljómsveitarmeðlimum er afar hlýtt til staðarins. Hljómsveitin Hraun samanstendur af Jóni Geir Jóhannssyni, trommuleikara, Guðmundi Stefáni Þorvaldssyni gítarleikara, Lofti Sigurði Loftssyni bassaleikara og Svavari Kristinssyni sem leikur á gítar og píanó og syngur. Frumsamin tónlist sveitarinnar er oftast lágstemmd og sorgmædd en ber þó ætíð með sér boðskap vonar. Þá má segja að tilvistarkreppa hljómsveitarmeðlima birtist ljóslifandi í bæði lagavali og frumsömdu efni sveitarinnar. Einnig má bæta því við að hljómsveitin er ætíð opin fyrir gestaleikurum og hafa fjölmargir skemmtilegir gestir stigið á svið með sveitinni og leikið með jafnt í frumsömdu efni sem tökulögum, hvort sem um er að ræða, flautu, fiðlu, píanó eða trompet. Hraun vinna nú að upptökum á sinni fyrstu plötu og er áætlað að hún komi út með vorinu. Þá er sveitin einn af þátttakendum í Tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég Suður, Rokkhátíð Alþýðunnar, sem fram fer á Ísafirði um páskahelgina. Tónleikarnir hefjast kl. 22 í kvöld.
Menning Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Sjá meira