Innlent

Mikil eftirspurn eftir vændi

MYND/NFS
Giftir karlar eru helstu viðskiptavinir hennar. Hún tekur þrjá í mánuði - níutíu þúsund krónur skattfrjálst. Hún markaðssetur sig á Einkamal.is og eftirspurnin eftir þjónustu hennar er mikil. Stöð 2 ræddi við íslenska vændiskonu í dag, viðskiptafræðing að mennt. Vændið er hennar annað starf. Hún er í góðu daglauna starfi að eigin sögn og byrjaði að selja líkama sinn fyrir einu ári. Hún segist hafa byrjað að fara inn á Einkamál.is bara til að finna sér einhverja til að sofa hjá eftir að hún hætti með manninum sínum. Síðan ákvað hún að prófa að selja blíðu sína. Þetta hafi líka verið smá fantasía hjá henni. Hún segir að sér líði ekki illa þegar hún taki við borgun frá ókunnugum mönnum sem hafi samfarir við hana. Verðið er alltaf það sama, enda hefur hún þetta bara kynlíf. „Sumir vilja bara gera eitthvað fyrir mig sem er náttúrlega frábært fyrir mig, en finnst ótrúlegt að þeir vilji borga fyrir það,“ segir konan. Í flestum tilfellum eru mennirnir sem konan hittir giftir. Stundum ræða þeir við hana um konurnar sínar. Sumir eru mjög hamingjusamir með konunum sínum en eru til í að borga fyrir að hitta einhverja aðra í klukkutíma. Og konan segir eftirspurnina gífurlega, stundum 50 póstar á dag sem hún skoði þá ekki alla. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var sagt frá manni sem seldi lista með nöfnum vændiskvenna. Hennar nafn var þar að finna. Fyrst var hún ekki til í það þegar maðurinn sóttist eftir því en lét svo undan. Konan segist ætla að halda áfram í vændinu; hún segir að sér líði vel og þetta sé fín aukatekjulind. Hún kveðst ekki vera fátæk eða eiga neitt erfitt. Hún vilji bara geta farið oftar til útlanda, út að borða o.s.frv. Á heimasíðunum Einkamál.is og Private.is má finna auglýsingar frá tugum vændiskvenna sem bjóða þjónustu sína gegn gjaldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×