Kannar hvort fækka eigi vistmönnum 8. nóvember 2005 17:23
Kanna á hvort fækka eigi vistmönnum á Sólvangi í fimmtíu og fimm til sextíu á næstu vikum svo draga megi úr þrengslum þar segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra.Tvöfalt kerfi er staðreynd í heilbrigðiskerfinu, þar sem þeir efnameiri geta keypt sér betri þjónustu en hinir efnaminni verða að láta sér lakari þjónustu lynda, sagði Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, í utandagskrárumræðu á Alþingi síðdegis. Hann sagði þjónustu við aldraða látna drabbast niður og kallaði heilbrigðisráðherra til ábyrgðar. Fréttir af miklum þrengslum á Sólvangi í Hafnarfirði urðu honum tilefni til að spyrja ráðherra hvort hann væri reiðubúinn að hraða almennum endurbótum þar.Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra sagðist hafa fyrirskipað að endurbótum á Sólvangi skyldi hraðað. Hann sagði meðal annars þurfa að skoða hvort fækka þyrfti vistmönnum en bætti við að ekki væri hægt að einblína á Sólvang heldur þyrfti að skoða öldrunarþjónustu í Hafnarfirði frá ýmsum hliðum. Hann vísaði þó á bug gagnrýni stjórnarandstæðinga um að lítið væri gert til að leysa vandann og sagði að útgjöld til málaflokksins hefðu hækkað úr níu milljörðum í fjórtán á skömmum tíma, mörg rými hefðu verið byggð og fleiri væru í byggingu. Þá vísaði hann því á bug að komið væri upp tvöfalt kerfi, eitt fyrir þá sem gætu keypt sér aukaþjónustu og annað fyrir þá sem gætu það ekki.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Innlent Fleiri fréttir Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Sjá meira