Innlent

Rændar þriðja hvern dag

Sænskir bankaræningjar hafa komist yfir um 450 milljónir sænskra króna í ránum úr bönkum og peningaflutningabílum á undanförnum sex árum. Tíðni bankarána er hærri í Svíþjóð en víðast hvar í Evrópu. Frá janúar 2002 til septembermánaðar í ár voru slík rán framin í Svíþjóð þriðja hvern dag að meðaltali.

Svíar eru í fjórða sæti á Evrópu­listanum með 224 bankarán en löndin í þremur efstu sætunum eru Bretar, Frakkar og Pólverjar. Bankarán í öðrum Norðurlöndum voru 93 í Danmörku á fyrrgreindu tímabili, 42 í Noregi og einungis fjögur í Finnlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×