Fyrstu hettusóttartilfellin í 6 ár 11. júlí 2005 00:01
Hettusótt, sem ekki hefur greinst hér á landi síðan árið 1999, greindist nýverið í þremur einstaklingum. Tveir þeirra sem sýktust höfðu ekki verið bólusettir gegn hettusótt að því er fram kemur í farsóttarfréttum frá Landlæknisembættinu. Þeir sem sýktust voru á aldrinum 19-25 ára. Tveir höfðu ekki verið bólusettir og ekki er vitað um bólusetningarsögu þess þriðja. Tveir höfðu verið á ferðalagi í Englandi skömmu fyrir veikindin en þar hefur faraldur af völdum hettusóttar brotist út hjá óbólusettum einstaklingum. Hettusótt er veirusýking sem einkennist af hita, slappleika og bólgu í munnvatnskirtli. Sýkingin er oftast hættulaus og gengur yfir á stuttum tíma en getur verið alvarleg, einkum hjá fullorðnum og unglingum. Helstu afleiðingar hettusóttar eru heila- og heilahimnubólga, heyrnaskerðing og ófrjósemi hjá karlmönnum vegna sýkingar í eistum. Bólusetning gegn hettusótt hófst hér á landi árið 1989 og er nú mælt með bólusetningu allra barna við 18 mánaða og 12 ára aldur. Fyrir 1989 var hettusótt landlæg hér á landi en síðan bólusetning hófst hefur dregið mjög úr tíðni sýkingarinnar og ekkert tilfelli hefur greinst síðan 1999 þar til nú. Í farsóttarfréttum er hvatt til þess að fylgja fyrirmælum um bólusetningar vegna hættu á sýkingum í útlöndum, hafi einstaklingar ekki verið bólusettir.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira