Stígamót gera athugasemd við dóm 9. júlí 2005 00:01
Magnús Einarsson var dæmdur í níu ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir að bana 25 ára gamalli eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur. Magnús játaði að hafa kyrkt Sæunni með þvottasnúru. Við málsmeðferð kom fram að erfiðleikar voru í hjónabandi þeirra. Í niðurstöðu dómsins segir að ekki verði vísað á bug frásögn Magnúsar um að Sæunn hafi skýrt honum frá kynferðislegum samskiptum sínum við aðra menn, og lýst þeim í smáatriðum. Um þau samskipti er þó einungis við frásögn Magnúsar að styðjast. Hámarksrefsing fyrir manndráp er 16 ár samvkæmt íslenskum lögum. Við refsilækkun vísar dómurinn í fjórðu málsgrein 74.greinar hegningarlaga þar sem segir að refsingu megi færa niður ef maður hefur framið brot í mikilli reiði eða geðæsingu, sem sá, er fyrir brotinu verður, hefur vakið hjá honum með ólögmætri árás eða stórfelldri móðgun. Á síðasta ári var refsing yfir manni, sem gekk í skrokk á eiginkonu sinni, milduð með sömu rökum. Sá dómur var einnig kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness. Drífa Snædal, talskona Stígmóta, skýrir refsilækkuna með því að konan hafi örgað honum á einhvern hátt eða reitt hann til reiði. Hún segir því umhugsunavert hvaða skilaboð dómurinn sé að senda. Og hún spyr jafnframt að því hvort að hægt sé að ganga í skrokk á fólki, lemja konurnar sínar og segja síðan fyrir dómi, „hún hélt framhjá mér". Hún telur þess dóma beinlínis letja konur til þess að kæra þegar brotið er á þeim. Verjandi Magnúsar, Kristinn Bjarnason, segir niðurstöðu dómsins fara nærri því sem vænta mátti, ef fallist yrði á sjónarmið refislækkunarástæðu sem farið var fram á. Hins vegar megi alltaf velta fyrir sér hvað teljist hæfileg refsing. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort dóminum verður áfrýjað. Að mati föðurs Sæunnar heitinnar, Páls Einarssonar, er dómurinn allt of lágur. Í samtali við fréttastofu sagði hann að aldrei hefði annað að sér hvarflað en Magnús hlyti sextán ára fangelsisdóm. Skelfilegt sé að hugsa til þess að hann verði jafnvel látinn laus eftir sex eða sjö ára afplánun fyrir þennan verknað.
Fréttir Innlent Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira