Vonuðum að einhver væri að leita 21. mars 2005 00:01 "
Við vonuðum að einhver væri að leita að okkur undir það síðasta en okkur skorti hvorki vatn né mat og okkur var aldrei kalt," sagði Ragnar Þór Georgsson eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hann og tvo ferðafélaga hans til byggða í gærkvöldi. Þegar þau fundust á áttunda tímanum í gærkvöldi hafði ekkert spurst til þeirra í rúman sólarhring. Ungmennin þrjú; Stefán Pálsson, Sesselja Antonsdóttir og Ragnar Þór, lögðu upp frá Dalvík á tveimur bílum um hádegisbil í fyrradag og var ætlunin að keyra suður til Reykjavíkur um Kjöl. Varhugavert er að fara þar um á þessum tíma enda krapi mikill og veðurfar mjög breytilegt. Annar bíllinn festist fljótlega í krapa en þau héldu engu að síður áfram á hinum bílnum þar til hann varð olíulaus um svipað leiti og þyrlan fann þau. Þá var enn tveggja tíma akstur til byggða. Ungmennin voru björguninni fegin en sagði Ragnar að aldrei hefði væst um þau þann tíma sem leit stóð yfir. "Það var farið að skyggja þegar við loks fundum þau og líklega ekki nema 20 mínútur áður en við hefðum orðið að hætta leit," sagði Björn Brekkan, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni. Þyrla Gæslunnar var þá nýlent á Reykjavíkurflugvelli með ungmennin þrjú sem leitað var í allan gærdag.
Innlent Menning Mest lesið „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Lífið Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Lífið Barnaefni fyrir fullorðna Gagnrýni Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Lífið Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu Lífið Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn Lífið 2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér Lífið Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Lífið Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lífið samstarf „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Tónlist Fleiri fréttir Ásdís Rán og Herbert Guðmunds glæsileg á frumsýningu Sveppi kominn í Púðursykur: „Vettvangur sem ég hef ekki farið inn á áður“ Stofnandi Omnom selur hönnunarhús í Akrahverfinu Sló sér upp með báðum á mótinu og endaði með sigurvegaranum Hollendingar bætast í sniðgönguhópinn Læknirinn með risa heimasmíðaðan pizzakofa í garðinum 2222 dagar sem betri útgáfa af sjálfum sér „Við erum eiginlega gangandi kraftaverk“ Síðasta vígið fallið: „Við erum búnir að ræða þetta í 22 ár“ Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Guðlaugur Þór í klandri með klukkuna Brynja og Lil Curly ástfangin í draumkenndu fríi Ragnhildur Steinunn snýr aftur á hvíta tjaldið Birti bónorðið í Bændablaðinu Svona verður Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton „Eiginlega vandræðalega mikil áhrif“ Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? „Pabbi minn gaf okkur saman“ Litrík og ljúffeng búddaskál Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Umdeild mormónadrottning nýja piparjónkan Leifur Andri og Hugrún selja íbúðina í Garðabæ Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Endurheimti lífsgleðina við gerð ostabakkanna Ástrós Trausta, John Legend og Bæjarins Beztu í Kjós Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Sjá meira