Innlent

Krefjast niðurfellingar Baugsmálsins

Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari segir það réttarfarslega afskræmingu að telja engan bæran til þess að taka stöðu ákæranda í málinu.
Sigurður Tómas Magnússon settur saksóknari segir það réttarfarslega afskræmingu að telja engan bæran til þess að taka stöðu ákæranda í málinu.

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur öðru sinni sett Sigurð Tómas Magnússon sérstakan saksóknara í Baugsmálinu með það fyrir augum að taka af allan vafa um formlega stöðu hans til að fara með þann hluta málsins sem enn er rekin fyrir dómstólum.

Með formlegum bréfaskriftum í vikunni skilaði Sigurður umboði sínu til ríkislögreglustjóra. Eftir það var ferlið endurtekið með formlegum hætti; Bogi Nilsson ríkissaksóknari tók við málinu á nýjan leik, sagði sig síðan frá því sökum vanhæfis og dómsmálaráðherra skipaði Sigurð Tómas á nýja leik með bréfi dagsettu 8. desember.

@Mynd -FoMed 6,5p CP:Héraðsdómur Reykjavíkur Í GÆR Sigurður Tómas saksóknari og Gestur Jónsson, verjandi í Baugsmáli, ræðast við. Fréttablaðið/E. Ól.

Þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær gerðu verjendur sakborninga kröfu um að ákæruliðirnir átta, sem til meðferðar eru, yrðu felldir niður þar eð vafi hefði leikið á því að Sigurður Tómas hefði verið rétt skipaður saksóknari í málinu þegar það var tekið fyrir í nóvember síðastliðnum. Líta bæri svo á að enginn hefði mætt fyrir hönd ákæruvaldsins í réttinum og um ítrekaða útivist svonefnda hefði verið að ræða.

Verjendur telja einnig að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sé vanhæfur til þess að skipa saksóknara í málinu og krefjast úrskurðar réttarins um hæfi hans. Loks telja verjendur að óheimilt sé að flytja rekstur málsins milli embætta í miðjum klíðum og vísa til þess að Ríkislögreglustjóri hafi verið búinn að gefa út ákærur þegar málið var flutt milli embætta.

Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari, mótmælti því að ákærandi hefði í raun ekki verið til staðar í málflutningi í nóvember og útilokað væri að komast að því að ákærandi hafi ekki verið viðstaddur meðferð málsins oftar en einu sinni. Sagði hann það réttarfarslega afskræmingu að telja engan bæran til þess að taka stöðu ákæranda í málinu.

Sækjandi og verjendurnir hafa áður lýst því að nauðsynlegt sé að skera úr um hæfi dómsmálaráðherra til þess að setja saksóknara í Baugsmálinu. Búast má við að héraðsdómur dæmi í málinu strax eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×