Kárahnjúkamótmæli kostuðu 20 milljónir 10. desember 2005 03:30 Mótmælin við Kárahnjúka. Gert er ráð fyrir 38 milljónum króna í fjáraukalögum til Ríkislögreglustjóraembættins. Rúmur helmingur er vegna aukinnar löggæslu Ríkislögreglustjóra við Kárahnjúka í sumar.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 38 milljónum króna á fjáraukalögum til ríkislögreglustjóraembættisins. Rúmur helmingur fjárveitingarinnar, tuttugu milljónir króna, er vegna sólarhringsvaktar embættisins vegna mótmæla umhverfisverndarsinna á Kárahnjúkum í sumar. Sólarhringsvaktin var viðhöfð við vinnusvæði álversframkvæmda á Austfjörðum til að afstýra skemmdarverkum, eins og það heitir í rökstuðningi með fjáraukalögunum, og koma í veg fyrir að vinna yrði stöðvuð með ólögmætum aðgerðum, að mati lögreglunnar. Jón Bjartmarz, starfsmaður Ríkislögreglustjóraembættisins, segir að embættið hafi verið með menn á vakt frá miðjum júlí þar til mótmælendur fóru suður kringum 10. ágúst. Vaktinni hafi þá verið hætt. Ríkislögreglustjóraembættið fær fjárveitinguna og gerir síðan upp við þau embætti sem voru með menn á staðnum. Veittar eru fimmtán milljónir króna til að fjármagna starfsemi fjögurra sérsveitarmanna á Akureyri sem heyra undir embætti ríkislögreglustjóra og undir daglegri stjórn sýslumannsins þar eða í því umdæmi sem þeir eru hverju sinni. Það er liður í að efla löggæslu fyrir norðan og er til reynslu í eitt ár til að byrja með. Þá er loks þriggja milljóna króna aukaframlag vegna kostnaðar við ferð fulltrúa kennslanefndar ríkislögreglustjóra til Taílands í kjölfar náttúruhamfaranna í Suðaustur-Asíu í janúar á þessu ári. Ferðin var farin að beiðni Norðmanna og í samráði við forsætisráðuneytið. Heildarkostnaður við hana nam rúmum þremur milljónum króna.
Innlent Mest lesið Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Fleiri fréttir „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Sjá meira