Bandaríkin eru á bremsunni 10. desember 2005 03:00 Mótmæli grænfriðunga. Grænfriðungar stóðu fyrir mótmælum fyrir utan loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Montreal í Kanada og hvöttu til aðgerða til að stöðva bráðnun norðurskautsíshellunnar.
Ríkin sem standa að Kyoto-bókuninni um aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda ætla að semja um frekari skuldbindingar sem taka við árið 2013. Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna lauk seint í gærkvöldi í Montreal í Kanada. Þar voru teknar ákvarðanir um framhald Kyoto-bókunarinnar. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, sem sótti ráðstefnuna, sagði að eitt það markverðasta sem fram hefði komið á ráðstefnunni hefði verið samkomulagið sem var í burðarliðnum undir lok ráðstefnunnar í gær. "Um þetta ríkir góð sátt, en ríkin hafa komið sér saman um samningsumboð fyrir næsta skuldbindingartímabil Kyoto-bókunarinnar sem hefst þá árið 2013," sagði hann og bættivið að í samkomulaginu væri kveðið á um að viðræðum yrði lokið nógu snemma til að ekki yrði bil á milli fyrsta og annars tímabils skuldbindingartímabils bókunarinnar. "Þetta er mikill árangur. Með samkomulaginu fá fyrirtæki heimsins skilaboð um að Kyoto-bókunin verði áfram í fullu gildi, lengur en til ársins 2012, og þar með líka þær grundvallarreglur að áfram verði dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda og að hægt verði að láta kvóta ganga kaupum og sölum." Þá sagði Árni mikilsvert samkomulag sem náðist um aðkomu þróunarríkja að Kyoto-bókuninni. "Að þau geti komi að henni án þess að undirgangast skuldbindingarnar að fullu, en taki engu að síður á sig skuldbindingar varðandi sjálfbæra þróun og nýtingu endurnýjanlegrar orku." Árni sagði einnig liggja fyrir ráðstefnunni ályktun um rammasamninginn sem Kyoto-bókunin er gerð við. "Þar hafa Bandaríkjamenn aðkomu því þótt þeir séu ekki aðlilar að Kyoto-bókuninni eru þeir aðilar að rammasamningnum," sagði hann og upplýsti að fulltrúar Bandaríkjanna hefðu gengið út af fundi um það mál í fyrrinótt. "Þeim líkar ekki að tala um framtíðina," sagði hann en taldi þó ólíklegt að reynt yrði að leggja stein í götu bókunarinnar. "Ljóst er að stjórn Bush hefur misreiknað sig og Bandaríkjamenn eru hér algjörlega einangraðir." Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra sagði í ræðu sinni að Kyoto-bókunin væri sögulegt skref en að grípa þyrfti til frekari aðgerða. Hún lagði áherslu á að til að takast á við útblástur gróðurhúsalofttegunda þyrfti hnattrænt átak til langs tíma. Þróuðu ríkin ættu áfram að leiða verkefnið en virk þátttaka þróunarríkjanna, byggð á samvinnu og sjálfbærri þróun, væri einnig nauðsynleg.
Innlent Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira