Nú verður eitthvað að láta undan 14. júní 2005 00:01
Í fyrsta sinn í sögu tíu liða efstu deildar mætast lið í sjöttu umferð sem bæði hafa fullt hús þegar leikurinn hefst. Valsmenn hafa byrjað best allra nýliða og geta séð til þess að FH-ingar jafni ekki met í kvöld. Þeir gerast varla flottari toppslagirnir en á Hlíðarenda í kvöld þegar Íslandsmeistarar FH heimsækja nýliða Valsmanna í Landsbankadeildinni en liðin eru fyrir leikinn hnífjöfn á toppnum, með fullt hús stiga og jafnmörg mörk skoruð. Það er því ljóst að annaðhvort Valur eða FH eða jafnvel bæði tapa sínum fyrstu stigum í Landsbankadeildinni í sumar en aðeins þrjú önnur lið í sögu efstu deildar hafa náð að vinna fimm fyrstu leiki sína síðan að tíu lið skipuðu hana fyrst sumarið 1977. Íslandsmeistarar FH-inga hafa unnið átta deildarleiki í röð og leikið 21 leik í röð án þess að tapa. FH-ingar geta jafnað met með sigri í kvöld en það yrði níundi útisigur liðsins í röð. FH hefur unnið þrjá fyrstu útileiki sína í sumar og vann auk þess fimm síðustu útileiki sína í fyrrahaust. Aðeins eitt lið hefur unnið fleiri útileiki í röð í sögu tíu liða efstu deildar en KR-ingar unnu 9 útileiki í röð á árunum 1999 til 2000. Síðasta liðið til að hafa stig af FH á sínum eigin heimavelli voru einmitt Skagamenn fyrir rétt tæpu ári síðan en liðin gerðu þá 2-2 jafntefli upp á Skaga. FH-ingar eru nú eitt af fjórum liðum sem hafa unnið 8 útileiki í röð en hin eru Valur (1978), Víkingur (1991-92) og ÍA (1993-94). Valsmenn hafa leikið frábærlega í sumar, unnið alla fimm leiki sína og skorað tvö mörk eða meira í öllum leikjunum. Eitt stærsta prófið á Valsliðið verður í kvöld. FH-ingar hafa gríðarlega sterkan og traustan hóp og hafa unnið sannfærandi sigra í sumar þótt framistaðan hafi kannski ekki verið eins glæsileg og hjá Val. Það er ljóst að eitthvað verður að láta undan á Valsvellinum í kvöld og því má búast við hörkuleik tveggja frábærra liða.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Handbolti „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Fótbolti „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ Handbolti Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ Körfubolti Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Kane sektaður en ekki settur í leikbann Körfubolti Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Fótbolti Heskey yngri tryggði City titil gegn United Enski boltinn „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Fótbolti Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Körfubolti Fleiri fréttir Venus verður sú elsta til að spila á Opna franska FIFA og Sádar í eina sæng „Stríðshetjur“ Íran lagðar af stað á HM „Við erum alltaf að gefa í“ Bikarinn í húsi og leikar að æsast: „Það eiga að vera læti“ „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ FIFA stefni öryggi leikmanna í hættu á HM Búist við því að Carrick skrifi undir tveggja ára samning um helgina „Þú ætlar bara í alvörunni að spyrja mig að þessu núna?“ Heskey yngri tryggði City titil gegn United „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi „Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Scheffler aldrei áður verið í toppsætinu eftir fyrsta hring Sjáðu Glódísi taka við bikarnum eftir sögulegan sigur Dagskráin í dag: Grindavík getur tryggt titilinn á heimavelli Kane sektaður en ekki settur í leikbann Skilaboð um forsetann fjarlægð úr stúkunni Amandine: Einvíginu er ekki lokið Uppgjör: Haukar - Njarðvík 77-69 | Haukar lifa Sindri upp í úrvalsdeild í fyrsta sinn Óstöðvandi Sinner sló met Djokovic Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð „Ég tek fulla ábyrgð“ Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Sjá meira