Ríkisútvarpinu verður breytt í hlutafélag 5. desember 2005 22:51
Ríkisútvarpinu verður breytt í hlutafélag, samkvæmt frumvarpi sem þingflokkar ríkisstjórnarinnar samþykktu að leggja fram í dag. Ekki er einhugur innan stjórnarflokkanna um málið. Menntamálaráðherra vonast til að geta mælt fyrir frumvarpinu fyrir jól og að það verði að lögum á vorþingi. Fyrra frumvarp gerði ráð fyrir að breyta Ríkisútvarpinu í sameignarfélag en sú leið reyndist ófær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra segir að þingflokkar ríkisstjórnarinnar hafa komist að því samkomulagi að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag og það sé stærsta breytingin frá því í frumvarpinu í vor. Auk þess sé mjög takmörkuð heimild fyrir Ríkisútvarpið að standa í annarri starfsemi heldur en þeirri starfsemi sem fellur undir almannaþjónustuhlutverkið. Yfirstjórn Ríkisútvarpsins verður m.a. breytt þannig að útvarpsráð fær samskonar hlutverk og stjórn í fyrirtæki. Stærsta breytingin snýr þó að afnotagjöldunum. Þorgerður Katrín segir að breytingarnar muni taka gildi þegar í stað nema afnotagjöldin sem haldast út árið 2007. Fyrsta janúar 2008 taki síðan við nýtt fyrirkomulag sem fellur undir nefskattinn. Það er þó ekki einhugur í þingliði stjórnarflokkana um að gera Ríkisútvarpið að hlutafélagi. Þannig hefur einn þingmaður Framsóknarflokksins hið minnsta gert sínar athugasemdir. Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks segir að málið hafi verið verið samþykkt til framlagningar en síðan eigi eftir að koma í ljós hver stuðningurinn verði við frumvarpið. Kristinn segist sjálfur setja fyrirvara við stuðning sinn við málið. Hann hafði verið mjög skeptískur á þetta fyrirkomulag, að breyta Ríkisútvarpinu í hlutafélag. Kristinn segist ætla að kynna mér frumvarpið áður en hann kveð upp úr með það en hann telur fyllstu ástæðu til þess að hafa allan fyrirvara á málinu.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira