Varnarsigur Verkamannaflokksins 6. maí 2005 00:01
Þótt Verkamannaflokkurinn hafi haldið velli í bresku þingkosningunum í fyrradag þá er ljóst að þingmeirihlutinn má ekki naumari vera. Óvæntustu tíðindi gærdagsins voru þó afsögn Michaels Howard, leiðtoga íhaldsmanna. Segja má að úrslit kosninganna á fimmtudaginn hafi verið skárri en leiðtogar stóru flokkanna óttuðust en verri en þeir vonuðust til. Verkamannaflokkurinn fékk 355 þingsæti, íhaldsmenn 197, frjálslyndir demókratar 62 og aðrir flokkar deildu með sér 28 þingsætum. 61 prósent kjósenda mætti á kjörstað sem er örlitlu betri kjörsókn en í kosningunum 2001. Sigur Verkamannaflokksins er sögulegur í að minnsta kosti tvennum skilningi. Annars vegar hefur flokknum aldrei áður tekist að halda meirihluta sínum í þrennum kosningum í röð. Hins vegar hefur engin ríkisstjórn frá upphafi þingræðis í landinu haft jafn lítinn hluta kjósenda á bak við sig. Ef litið er til allra kosningabærra manna þá kemur í ljós að aðeins 22 prósent þeirra styðja ríkisstjórn Verkamannaflokksins. "Ég hef hlustað og lært," sagði Tony Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins, þegar hann ávarpaði fréttamenn fyrir utan Downing-stræti 10 í gær. "Og ég held að ég hafi mjög góða hugmynd um hvers breska þjóðin væntir af ríkisstjórninni á þessu kjörtímabili." Með aðeins sjötíu sæta þingmeirihluta er ljóst að mun erfiðara verður fyrir Blair að koma umdeildum málum í gegnum þingið. Niðurstöður kosninganna auka jafnframt líkurnar á að Blair sitji aðeins hluta kjörtímabilsins en síðan taki Gordon Brown við stjórnartaumunum. Þrátt fyrir að hafa aukið þingsætafjölda íhaldsmanna um 36 boðaði Michael Howard, leiðtogi þeirra, óvænt afsögn sína í gær. Hann sagði ekki hvenær hann léti af völdum, aðeins að það yrði fyrr en síðar. Frjálslyndir demókratar juku sömuleiðis fylgi sitt umtalsvert og geta ágætlega við unað. Charles Kennedy, leiðtogi frjálslyndra, sagði í gær að úrslitin sýndu að tveggja flokka kerfið væri liðið undir lok í Bretlandi. Andstaða þeirra við Íraksstríðið telst þeim eflaust til tekna, rétt eins og George Galloway, fyrrum þingmanni Verkamannaflokksins, sem bauð sig fram gegn sínum fyrri félögum og vann. Af öðrum frambjóðendum má nefna Gerry Adams, leiðtoga Sinn Fein, en hann hlaut yfirburðakosningu í kjördæmi sínu í Vestur-Belfast á Norður-Írlandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Erlent Moskítóflugur muni koma til Íslands Innlent Vilja að ríkisstarfsmenn starfi til 73 ára aldurs Innlent Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Erlent Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Innlent Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Erlent Sex evrópskir utanríkisráðherrar skora á Ísrael Innlent Borin út úr Bríetartúni: „Það er búið að ræna mig öllu“ Innlent Misstu aðra herþotu í sjóinn Erlent Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Erlent Fleiri fréttir Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Bein útsending: Páfakjör í Páfagarði Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Trump um kaupin á Kanada: „Aldrei segja aldrei“ Merz náði kjöri í annarri tilraun Niðurlægjandi fyrir Merz og AfD krefst þingkosninga á ný Sakar Rússa um fordæmalaus afskipti af kosningum í Póllandi Kardinálarnir læstir inni á morgun Ríkisstjórn Rúmeníu liðast í sundur eftir sigur öfgahægrimanns Náði ekki kjöri í sögulegri atkvæðagreiðslu Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Sjá meira