Innlent

Telur trúlausa ekki fá þá þjónustu sem þeim ber

Sigurður Hólm Gunnarsson
Sigurður Hólm Gunnarsson

"Að minnsta kosti 120 unglingar munu fermast borgalegri fermingu í vor og þessi hópur hefur farið stórvaxandi á undanförnum árum," segir Hope Knútsson, formaður Siðmenntar. Það er tæp 30 prósenta aukning frá síðasta vori.

Félagsmenn skilgreina félagið sem lífsskoðunarfélag sem sé málsvari mannúðarstefnu og frjálsrar hugsunar, óháð trúarsetningum. Sigurður Hólm Gunnarsson, varaformaður félagsins, segir þeim stórfjölga einnig sem óski eftir giftingum og útförum án tengsla við trúfélög en slík þjónusta sé af afar skornum skammti.

"Við höfum tvívegis sóst eftir því að fá skráningu sem trúfélag hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og að sömu reglur giltu um okkur og trúfélög en þá fengjum við greidd sóknargjöld og gætum þá eflaust veitt þessa félagslegu þjónustu sem við teljum að hver maður eigi rétt á óháð því hvort hann sé trúaður eða ekki," segir Sigurður Hólm.

Umsóknum Siðmenntar var hafnað. "Nú erum við að vinna að því að lög verði sett um lífsskoðunarfélög svo staða okkar verði lík stöðu trúfélaganna. Í Noregi til dæmis hafa slík lög verið sett svo að jafnræði sé með þegnunum hvort sem þeir eru í trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi," segir Sigurður Hólm.

Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur sagði í útvarpsmessu sinni síðasta sunnudag að rúmlega 40 þúsund manns kjósi að standa utan þjóðkirkjunnar. Hann sagði ennfremur að það stangaðist á við jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar að opinberum gjöldum einstaklinga sé með beinum eða óbeinum hætti ráðstafað til eflingar trúfélaga sem viðkomandi ætti ekki aðild að. Þetta væri mismunun því að þjóðkirkjan fengi hátt í fjóra milljarða af fjárlögum ríkisins.

"Það er í rauninni aðeins 85 prósent landsmanna sem eru nú innan þjóðkirkjunnar en ekki 95 til 99 prósent líkt og lengi var og því er spurningin sú: hvað þarf þetta hlutfall að verða lágt svo að þessi forréttindastaða verði afnumin," segir Friðrik Þór Guðmundsson, oddviti Samtaka um aðskilnað ríkis og kirkju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×