Mat á Baugsverði dregist í 18 mán 18. júlí 2005 00:01
Matsnefnd um verð á hlutabréfum í Baugi mun loks skila af sér niðurstöðu í málinu í ágúst, meira en einu og hálfu ári eftir að hún var skipuð. Nefndarmenn viðurkenna að fyrrverandi hluthafar í Baugi, sem ekki sættu sig við verðið sem þeir fengu fyrir bréf sín við þvingaða yfirtöku, hafi mátt bíða allt of lengi. Þegar hlutabréf í Baugi fóru af markaði fyrir um þremur árum var langflestum hluthöfum greitt út á hæsta gengi síðustu sex mánaða þar á undan. Sparisjóður Mýrarsýslu, Sundagarðar hf. og þrettán einstaklingar sættu sig hins vegar ekki við þetta og kærðu málið. Héraðsdómur Reykjavíkur skipaði þá Kristján Jóhannsson og Gunnar Þór Ásgeirsson sem matsmenn í málinu í desember árið 2003. Þeirra hlutverk var að meta raunverulegt verðmæti Baugs og eignahlut þeirra sem kærðu. Nú meira en einu og hálfu ári síðar bólar enn ekkert á niðurstöðu í málinu. Bæði Gunnar og Kristján sögðu í samtali við fréttastofu í dag að það hefði dregist að fá gögn frá Baugi vegna málsins og síðan hefðu þeir báðir lent í miklum önnum vegna annarra verkefna og því hefði það dregist að klára málið. Gunnar sagði að verið væri að vinna í málinu og niðurstöðu væri að vænta í lok ágúst, eða skömmu eftir þingfestingu í Baugsmálinu svokallaða. Það væri heilmikið mál að meta hlutabréf í jafnstóru fyrirtæki og Baugi og tæki einfaldlega sinn tíma. Gunnar vildi ekki tjá sig um hvort Baugsmálið hefði haft einhver áhrif á framvindu matsins á hlutabréfunum í Baugi. Hann vildi heldur ekkert tjá sig um hvort málið hefði flækst eftir því sem það hefði dregist, en viðurkenndi að það hefði dregist allt of lengi. Löglærðir sérfræðingar sem fréttastofan ræddi við í dag sögðust ómögulega geta séð að það væri margra mánaða verk að meta verðmæti bréfanna. Eftir því sem lengra liði yrði málið eðli málsins samkvæmt flóknara og flóknara og ekki síst eftir að ákærur voru gefnar út í Baugsmálinu. Fyrir Sparisjóð Mýrarsýslu sem átti 911 þúsund hluti í Baugi og Sundagarða sem átti fjórar milljónir og 833 þúsund hluti gæti verið um verulegar upphæðir að ræða.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira