Innlent

Skemmtiferðakskip á Flateyri

Þrjátíu og átta þúsund tonna bandarískt lúxus-skemmtiferðaskip kom til Flateyrar í morgun með 800 farþega innanborðs, og er að öllum líkindum fyrsta skemmtiferðaskipið sem þangað kemur. Upphaflega átti skipið, sem heitir Prinsendam, að leggjast fyrir ankeri út af Ísafjarðarbæ. Þar var hins vegar of hvasst í morgun fyrir ferjubátana, svo skipinu var snúið til Önundarfjarðar og inn undir Flateyri, þar sem logn hefur verið í morgun. Farþegarnir fara í lengri og skemmri ferðir um nágrennið og heldur skipið aftur á haf út undir kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×