Fleiri vilja skrá sig í sumarhús 13. júlí 2005 00:01
Skipulagsnefnd sveitarfélaga í uppsveitum Árnessýslu hefur lagt til að ekki verði veitt leyfi til lögheimilis í frístundarbyggð nema að umsækjandi færi fram sannanir fyrir fastri búsetu sinni og skuli það gert með lögregluskýrslu þar sem umsækjandi færir einnig rök fyrir því að hann vilji búa í frístundarbyggð. Standi húsið inni á frístundasvæði verði umsækjandi að sækja um að aðalskipulagi fyrir lóðina sem heimilið er á verði breytt. Sveitarstjórn í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur skrifað undir þessi tilmæli enda hafa sveitarfélaginu þegar borist umsóknir um lögheimili í frístundarbyggð þar síðan dómur féll í Hæstarétti í maí síðastliðnum sem heimilar að menn hafi lögheimili sitt í sumarbústað sé hann íbúaðarhæfur allan ársins hring. "Við eru alls ekki á móti því að fá fólk í sveitarfélagið en við vinnum eftir skipulags- og byggingarlögum og það eru fjölmargir sumarhúsaeigendur ósáttir við íbúabyggð í frístundabyggð," segir Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri í Hrunamannahreppi segir að þar hafi menn ekki farið varhluta af áhuga fólks á að flytja lögheimili sitt þangað. Hann segir að sveitarfélagið sé ekki í stakk búið til að veita íbúum þá þjónustu sem því ber skylda til ef íbúum með lögheimili þar fjölgi. Hann segir að sveitarstjórnin sé að ræða það hvernig bregðast megi við þessari eftirspurn. Trausti Fannar Valsson, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem einnig á sæti í starfshópi á vegum félagsmálaráðuneytisins sem ræðir áhrif dómsins á þjónustuhlutverk sveitarfélaga, segir að eins og sakir standa hafi sveitarfélögin ekki heimild til þess að setja skilyrði fyrir lögheimilisveitingu. Hann bendir hins vegar á að dómurinn gangi gegn ákveðnu forræði sem sveitarfélögin hafa samkvæmt skipulags- og byggingarlögum til að skipuleggja byggð. Samkvæmt þeim lögum getur sveitarfélag ákveðið að á einum stað eigi að vera sumarhúsabyggð sem ekki verði nýtt til fastrar búsetu.
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira