Kríuvarp nánast horfið sumstaðar 13. júlí 2005 00:01
Fádæma lélegt kríuvarp hefur verið við vestanvert landið, í Breiðafirði, á Snæfellsnesi og Reykjanesi og á Norðurlandi. Fuglinn verpir seint eða ekki og sumstaðar er kríuvarp nánast horfið. Varp ýmissa fugla hefur misfarist víða um land og má þar nefna ritu, tistu og toppskarf í Breiðafirði, langvíu og álku á Langanesi og Látrabjargi og kríu víðs vegar um landið. Dæmi eru um að sum kríuvörp séu nánast horfin. Helsta ástæðan fyrir því að vörp misfarast er ætisskortur að sögn Arnþórs Garðarssonar, prófessors í dýrafræði. Þær tegundir sem fara verst út úr þessu eru þær sem lifa aðallega á sandsíli. Sandsíli er einn af þeim fiskum sem ekki er veiddur við strendur landsins og eru því litlar upplýsingar um hann að finna. Ef ætuna vantar hafa fuglarnir einfaldlega ekki orku í að verpa eða sinna ungunum og því sleppa sumir fuglar alveg að verpa en það er þó misjafnt eftir tegundum. Um 2/3 fuglanna hafa bara gefist upp og farið á sjóinn að nýju. Undanfarin 3-5 ár hefur varp hjá toppskarði, tistu og kríu við vestanvert landið verið í uppnámi og kríuvarp hefur verið fádæma lélegt fyrir austan, t.d. í Þistilfirði. Langvíur og álkur leita frekar í síld og loðnu en sandsíli og ef orðið hafa tilfærslur á síldar- og loðnugöngum getur það komið niður á varpi. Arnþór segir erfitt að sjá breytingar í fari og fasi fugla nema yfir árabil svo að erfitt sé að túlka áhrif þess að varp hefur misfarist svo víða. Bíða þurfi í nokkur ár til að sjá hvernig málin þróast.
Fréttir Innlent Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Fleiri fréttir „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Sjá meira