Sport

Bjóst aldrei við þessu

„Ég bjóst aldrei við því að þetta mál færi svona langt og þetta kom mér á óvart,“ sagði Eiríkur Guðmundsson, formaður meistaraflokksráðs ÍA, í gær. Aganefnd KSÍ ákvað að sekta Knattspyrnudeild ÍA um 15.000 krónur vegna ummæla sem Ólafur Þórðarson, þjálfari liðsins, lét hafa eftir sér í fjölmiðlum eftir leik gegn Val. Þá fékk Ólafur sjálfur alvarlegar ávítur vegna ummælanna. Hann vildi ekki tjá sig um málið þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær. Ólafur lét ýmis orð falla um dómarann Garðar Örn Hinriksson, var ósáttur við vítaspyrnudóm í umræddum leik og sakaði Garðar um að hata ákveðna leikmenn Skagamanna. Eftir að myndir af atvikinu, þar sem Garðar dæmdi vítaspyrnu, voru opinberaðar hringdi Ólafur í hann og bað hann afsökunar og viðurkenndi síðan mistök sín í útvarpsþættinum Mín skoðun daginn eftir. "Ólafur átti að halda þessum skoðunum fyrir sjálfan sig en ekki fara með þá í fjölmiðla. Hann biður síðan Garðar afsökunar og ég hélt að þessu máli væri þar með lokið, en það þýðir ekkert að æsa sig yfir þessu, þetta er bara búið og gert,“ sagði Eiríkur en neitaði því að Ólafur fengi refsingu frá sjálfu félaginu. „Við þurfum bara að treysta á að hann verði skynsamur og láti ekki skapið hlaupa með sig í gönur. Ég tók nú eftir því að Logi Ólafsson gargaði eitthvað framan í fjórða dómarann í landsleiknum gegn Ungverjum um helgina, það er spurning hvort KSÍ muni sekta hann líka?“ Í fyrrasumar veitti KSÍ þjálfara einnig alvarlegar ávítur. Þá sakaði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari KA, Kristin Jakobsson um kynþáttafordóma eftir bikarleik gegn ÍA. Leikmaður félagsins, Slobodan Milisic, fékk einnig ávítur fyrir ummæli um Kristin eftir leik.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×