26. grein stjórnarskrár standi 11. október 2005 00:01
Þjóðarhreyfingin varar eindregið við því að hróflað verði við valdastöðu forseta Íslands. Verði það gert þá gæti hann allt eins verið þingkjörinn. Stjórnarskrárnefnd var skipuð 4. janúar á þessu ári og er hlutverk hennar að endurskoða stjórnaskrána og þá um leið valdastöðu forseta. Þjóðarhreyfingin leggst alfarið gegn því að við yfirstandandi enduskoðun stjórnarskrár, verði hróflað við 26. grein núgildandi stjórnarskrár sem kveður á um að forseti geti hafnað lagafrumvarpi og lagt það undir þjóðaratkvæðisgreiðslu. Í yfirlýsingu frá þjóðarhreyfingunni segir að ef þessi valdheimild verði tekin af forsetaembættinu þá gæti hann allt eins verið þingkjörinn. Þar segir að reynslan sýni að þessi valdheimild muni ávallt verða notuð af hófsemi og varfærni, þar sem henni hefur aðeins einu verið beitt á sextíu árum. En þrátt fyrir það sé hún þinginu mikilvægt aðhald, sem ekki megi afnema. Ólafur Hannibalsson, blaðamaður og talsmaður þjóðarhreyfingarinnar segir ástæðu fréttatilkynningarinnar vera þá að Þjóðarhreyfingin sé ósátt við orð forsætisráðherra sem hann lét falla í stefnuræðu sinni á dögunum þar sem hann sagði að breyta þyrfti valdastöðu og embætti forsetans. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra og formaður stjórnarskrárnefndar segir að nefndin sé ekki enn komin að efnislegri umfjöllun um stöðu forsetnas og því engar ákvarðarnir verið teknar. Hann sagði jafnframt að nefndin tæki erindi Þjóðarhreyfingarinnar til umfjöllunar bærist það henni. Nefndin á að skila áliti varðandi breytingar á stjórnaskrá í árslok 2006.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira