Loftbrú frá Íslandi í sextíu ár 12. júlí 2005 00:01
Hinn 11. júlí 1945 kl. 7.29 lagði Catalina-flugbátur Flugfélags Íslands af stað frá Skerjafirði til Largs Bay nærri Glasgow. Fjórir farþegar voru um borð, þrír Íslendingar og einn Skoti og stýrði Jóhannes Snorrason vélinni í þessu fyrsta áætlunarflugi íslensks flugfélags til útlanda. 12. júlí 2005 kl. 7.29 hélt Boeing 757 þota Icelandair til Glasgow með ríflega 150 farþega innanborðs og var Páll Stefánsson flugstjóri í þeirri ferð. Farþegunum voru gefnar gjafir í tilefni dagsins og haldin var móttaka á flugvellinum í gær í blíðskaparveðri. Móttakan náði hápunkti sínum þegar Boeing-þotan staðnæmdist á flugbrautinni rétt hjá gamla "þristinum" en sú vél var einmitt sú fyrsta sem Páll flaug á sínum atvinnuflugmannsferli. Þótt Páli þyki vænt um nafna sinn Sveinsson þá segir hann ólíkt þægilegra að fljúga þotunum. "Við erum um það bil fjórum sinnum fljótari í ferðum nú heldur en þá og fljúgum yfirleitt ofar skýjum í stað þess að skakast í skýjum og ókyrrð, inn á milli fjalla og fjarða." Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var glaður í bragði í góða veðrinu í Glasgow. "Þetta er mjög skemmtilegur dagur og gaman að því að Icelandair og breska flugmálastjórnin standi fyrir þessari hátíðarsamkomu." Sturla segir þýðingu dagsins fyrst og fremst sögulega en hann veki okkur jafnframt til umhugsunar hversu mikilvægar flugsamgöngur eru fyrir Ísland. "Allt hefur gjörbreyst í okkar samskiptum við aðrar þjóðir eftir að við fórum að fljúga. Þessi sextíu ár hafa verið hreinn ævintýratími fyrir okkur, bæði hefur ferðamönnum fjölgað ár frá ári og jafnframt hafa öll viðskipti orðið eins og við þekkjum í dag, við erum í fremstu víglínu, þökk sé fluginu." Á meðal þeirra sem boðið var til móttökunnar á flugvellinum í Glasgow í gær var Magnús Magnússon, þáttagerðarmaður og rithöfundur, og fjölskylda hans. Í ávarpi sínu á flugvellinum í gær vék Jón Karl Helgason, framkvæmdastjóri Icelandair, að þætti Magnúsar í að kynna land og þjóð og taldi hann að sennilega hefðu fleiri ferðamenn komið til landsins fyrir hans atbeina en Icelandair. "Þetta er fallega sagt en þetta er ekki rétt, Björk hefur gert miklu meira," sagði Magnús, hógvær á svip þegar ummælin voru borin undir hann. Magnús er með ýmis verkefni í gangi, "alltaf að fikta," eins og hann segir sjálfur, og hann býst við að koma til Íslands næsta sumar til að sanka að sér efni. DC-3 vélin Páll Sveinsson hélt til Danmerkur fljótlega að móttökunni lokinni en á föstudaginn verður svo haldið heim á ný. Fríður hópur flugmanna hefur skipst á að fljúga þristinum síðustu daga og segir Tómas Dagur Helgason, sá eini í hópnum sem bæði flaug vélinni út og flýgur henni aftur heim, að sá tími sé "búinn að vera alveg frábær. Við höfum slegist um að fljúga vélinni".
Fréttir Innlent Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira