32.000 jólatré flutt til landsins 26. nóvember 2005 08:30 Jólatréð komið upp á Ráðhústorgi. Búið er að setja upp jólatréð á Ráðhústorginu á Akureyri og verður kveikt á því við hátíðlega athöfn í dag.
Af þeim fjörutíu þúsund jólatrjám sem íslenskur markaður þarfnast fyrir hver jól koma átta þúsund úr íslenskum skógum. 32 þúsund tré eru innflutt og eru flest þeirra danskur Nordmannsþinur. Þröstur Eysteinsson, fagmálastjóri Skógræktar ríkisins, segir jólatré háð tískusveiflum eins og annað. "Dönum hefur tekist að markaðssetja sinn Nordmannsþin um alla Evrópu og það er tískujólatré í álfunni." Nordmannsþin er ekki hægt að rækta á Íslandi þar sem hann er ekki aðlagaður íslenskum aðstæðum. Rauðgreni er það íslenska tré sem flestir kjósa og segir Þröstur að um fjögur þúsund slík séu felld fyrir jólin. "Rauðgrenið er hið hefðbundna jólatré um allan heim en það er ekki jafn barrheldið og Nordmannsþinurinn." Sjálfur skreytir Þröstur heimili sitt með stafafuru sem hann segir barrheldna og fallega. Skógarhöggið hófst í fyrri hluta nóvember og stendur fram í miðjan desember. Í fyrstu voru aðeins hoggin tré sem fara til skreytinga utanhúss en nú nýlega hófust starfsmenn Skógræktarinnar handa við að höggva innitrén. Grisjun hefur orðið meðal jólatrjáaræktenda í Danmörku en umframframleiðsla var þar mikil síðustu ár. Hafa margir farið í þrot og framboðið því fjarri því sem var. Fyrir vikið hefur verðið hækkað. Gísli Sigurðsson, framkvæmdastjóri Garðheima, segir viðbúið að verð á jólatrjám hækki því eitthvað frá því sem var í fyrra en óljóst sé hve hækkunin verði mikil.
Innlent Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Erlent Fleiri fréttir Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Vestmanneyingar „slógu velferðarskjaldborg“ yfir gesti Búast við gasi á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Landsvirkjun sé ekki „löngu búin að semja“ við alla landeigendur Fagna afmæli virkjunar sem sökkti sveitajörðum en rafvæddi síldarbæ Kvenfólkið í Eyjum bjargaði deginum Skinkur og Sykurpabbar skemmta sér á Egilsstöðum Blússandi stemning á harmonikkuhátíð á Borg Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Stígvélaskortur í Eyjum og brekkusöngur í Kópavogi Þjóðhátíðarbrennunni frestað til sunnudags Sjá meira